Fréttir frá Dýraverndarsambandi Íslands
Sauðfé í sjálfheldu í Grindavík
Dýraverndarsambandið hefur fengið staðfest að um 30 kindur séu innilokaðar í fjárhúsi í Grindavík. DÍS beinir því til almannavarna sem annarra ábyrgra aðila í þeim aðgerðum sem nú eru í Grindavík að reyna, ef þess gerist nokkur kostur, að koma þessum skepnum til bjargar.
Yfirlýsing DÍS vegna álits umboðsmanns Alþingis um frestun hvalveiða
Dýraverndarsamband Íslands (DÍS) lýsir vonbrigðum sínum með álit umboðsmanns Alþingis þess efnis að skort hafi lagaheimild til að fresta veiðitímabili á langreyðum sumarið 2023. Í tilviki Hvals hf var búið að sýna fram á veiðarnar væru ekki í samræmi við lög um dýravelferð og því bar ráðherra að bregðast við.
Skýrsla Ríkisendurskoðunar um eftirlit MAST með velferð búfjár styður framkomið álit DÍS
Ríkisendurskoðun hefur birt skýrslu um eftirlit MAST með velferð búfjár. Niðurstaða skýrslunnar er í grundvallaratriðum í takti við þá úttekt sem DÍS lét vinna veturinn 2022-2023 og kynnt var í mars sl. Fram kemur í skýrslu DÍS að gefnir séu ítrekaðir frestir til betrumbóta og dýrin því látin þjást sem er andstætt lögum um velferð dýra.
Yfirlýsing dýraverndarfélaga vegna dýra í Grindavík
Dýraverndarsamband Íslands, Dýrfinna, Dýrahjálp Íslands, Kattholt, Villikettir og Villikanínur fara fram á að dýrum verði bjargað í Grindavík og nágrenni í dag. Ljóst er að enn er mikill fjöldi dýra á svæðinu sem er á neyðarstigi. Flytja þarf ÖLL dýr burt af svæðinu.
Hvatning DÍS til dýraeigenda í Grindavík vegna hættuástands
Dýraverndarsambandið hvetur Grindvíkinga til að fara varlega í þeim hættulegu aðstæðum sem hafa skapast.
DÍS vill jafnframt minna á gæludýrin stór sem smá og þann búfénað sem er á svæðinu, þau þurfa líka vernd. DÍS áréttar að það þarf að flytja ÖLL dýr burt af svæðinu.
Hvatning DÍS til fjáreigenda varðandi geldingar á hrútum
DÍS hvetur fjáreigendur á landinu eindregið til að fá dýralækna til geldinga á hrútum en framkvæma ekki slíkar aðgerðir sjálfir. Geldingar eiga aldrei, undir neinum kringumstæðum, að vera framkvæmdar af ófaglærðum aðilum né án deyfingar og verkjastillandi lyfja.
Umsögn DÍS um frumvarp til laga vegna banns við hvalveiðum
DÍS lýsir sig eindregið hlynnt markmiðum frumvarpsins um að banna hvalveiðar við Ísland. Frá því að greinargerð frumvarpsins var rituð hefur það komið í ljós að enginn marktækur tölfræðilegur munur er á þeim fjölda langreyða sem drepnar voru á kvalarfullan hátt á veiðivertíðinni í september á þessu ári miðað við vertíðina sumarið 2022.
Vanhöld hrossa á bænum Laugabóli í Arnarfirði
Stjórn DÍS hefur sent neðangreint bréf til Matvælastofnunar (MAST) vegna áframhaldandi alvarlegs ástands og slæms aðbúnaðar hrossa á bænum Laugabóli í Arnarfirði. DÍS fer fram á tafarlausar aðgerðir til handa hrossunum á bænum Laugabóli og að velferð þeirra sé varin.
Ályktun Dýraverndarsambands Íslands vegna hvalveiða
Stjórn DÍS harmar að hvalveiðar skuli hefjast að nýju. Stjórnin áréttar þá afstöðu sína að brýnt sé, út frá dýravelferðarsjónarmiðum, að hvalveiðum við Ísland ljúki alfarið á þessu ári. DÍS skorar á ráðherra og ríkisstjórn að sjá til þess að þetta verði allra síðasta árið þar sem hvalir þjást í viðskiptaskyni við Ísland.
DÍS fer fram á tafarlausa stöðvun á blóðtöku úr fylfullum hryssum
DÍS hefur borist áreiðanlegar upplýsingar um að mun fleiri hryssur hafi drepist í tengslum við blóðtöku í fyrra. Miðað við þær upplýsingar sem nú eru fyrir hendi fer DÍS fram á tafarlausa stöðvun á blóðtöku úr fylfullum hryssum og að öll þau tilvik þar sem hryssa drapst í tengslum við blóðtöku í fyrrasumar verði rannsökuð og viðbrögð við þeim í samræmi við lög.
Áframhaldandi alvarleg vanhöld sauðfjár á Höfða í Borgarbyggð
Stjórn DÍS hefur sent bréf til MAST vegna alvarlegs ástands sauðfjár frá bænum Höfða í Þverárhlíð. DÍS hefur rætt aðbúnað og vanrækslu dýranna á þessum stað áður við MAST. Málið er í ferli hjá stofnuninni og hefur DÍS beðið eftir aðgerðum en ekki er hægt að bíða lengur, það verður að verja velferð dýranna.
Yfirlýsing DÍS vegna deyfingar á svínum með koltvíoxíðgasi
Deyfing svína með koltvíoxíðgasi er ómannúðleg og grimm. Gasið er ertandi en það myndar sýru í öndunarvegi dýranna sem veldur þeim þjáningu og ótta. Dýraverndarsamband Íslands fer fram á að deyfing svína með koltvíoxíðgasi verði stöðvuð og bönnuð með lögum.
Yfirlýsing stjórnar DÍS vegna tímabundinnar stöðvunar hvalveiða
Stjórn DÍS fagnar þeirri ákvörðun matvælaráðherra að ákveða að stöðva veiðar á langreyðum til 31. ágúst nk. Sú ákvörðun er tekin í framhaldi af afdráttarlausri niðurstöðu fagráðs um dýravelferð sem birt var í gær. Niðurstaða ráðsins var að engin mannúðleg leið væri til að tryggja skjótan dauða langreyða við veiðar.