Dýraverndarsamband Íslands (DÍS) er frjáls félagasamtök sem starfa á landsvísu í þágu velferðar dýra. Sambandið er leiðandi í baráttunni fyrir velferð og réttindum dýra á Íslandi. DÍS var stofnað þann 13. júlí 1914 og eru félagar um 750 talsins.
Dýraverndarsambandið beitir sér fyrir betri löggjöf, ábyrgu dýrahaldi, bættu eftirliti og leggur áherslu á að efla opinbera umræðu um dýravelferð.
Dýraverndarsambandið á fulltrúa í fagráði um velferð dýra og á fulltrúa í samstarfsráði Matvælastofnunar.
Sambandið er aðili að Eurogroup for Animals og er aðili að Landvernd.
Merki DÍS er hannað af Stefáni Yngva Péturssyni. Merkið sýnir heimskautarefinn, fyrsta landspendýrið á Íslandi.
Um Dýraverndarsamband Íslands
Meginhlutverk DÍS samkvæmt lögum félagsins er:
Að standa vörð um lögvernd dýra og stuðla að góðri lagasetningu og reglubundnu opinberu eftirliti til verndar dýrum.
Að vinna að bættri velferð dýra, taka virkan þátt í umræðu um málefni þeirra á opinberum vettvangi og stuðla að málefnalegri umræðu um dýravelferð.
Að beita sér fyrir fræðslu og upplýsingamiðlun um góða meðferð dýra og hvetja skóla, félagasamtök og einstaklinga alla að auka og efla velferð þeirra.
