Félagið var stofnað árið 1914 og tímarit þess, Dýraverndarinn kom fyrst út árið 1915. Tilgangur blaðsins var að fræða almenning um dýravelferð og auka samkennd með dýrum. Með Dýraverndaranum eignaðist félagið öfluga rödd og vakti blaðið sívaxandi skilning á meðal almennings um dýr og velferð þeirra.

Dýraverndinn varð vinsæll á meðal landsmanna, sérstaklega fyrstu árin þegar hátt í 4.000 manns voru áskrifendur að blaðinu. Dýraverndarinn kom óslitið út allt til ársins 1983 en þá varð hlé, en blaðið var síðan gefið út aftur á árunum 2013 til 2015.

Hér má finna eldri árganga ritsins á vefnum timarit.is:

Dýraverndarinn 1915-1983

Tímaritið Dýraverndarinn