Dýraverndarsamband Íslands fær oft fyrirspurnir frá fólki um land allt sem hefur orðið vart illrar meðferðar á dýrum, einkum gæludýrum og búfénaði. Stundum er um grun frekar en vissu að ræða. Samt sem áður þarf að sinna öllum slíkum málum og láta viðkomandi eftirlitsaðila eða lögreglu vita enda slíkt skylt, samkvæmt dýravelferðarlögum.

Í lögum um velferð dýra er kveðið á um hjálparskyldu okkar gagnvart dýrum í neyð og ber að veita  sjúkum, særðum og bjargarlausum dýrum umönnun og aðstoð eftir föngum. 

Dýraverndarsambandið vill gjarnan aðstoða fólk við að vinna úr málum þar sem velferð dýra er ógnað og leiðbeinir um leiðir til úrlausna, en félagið hefur ekki lagalega heimild til beinna afskipta, svo sem að fara heim til fólks eða taka frá því dýr. Það geta eftirlitsaðilar og lögregla aðeins gert.   

Hægt er að hafa samband við DÍS á dyravernd@dyravernd.is

Hvert á að leita aðstoðar?​​