Dýraverndarsamband Íslands (DÍS) eru frjáls félagasamtök sem starfa í þágu velferðar dýra. Sambandið var stofnað þann 13. júlí 1914 og eru félagar um 800 talsins.

​Dýraverndarsambandið beitir sér fyrir betri löggjöf, ábyrgu dýrahaldi, bættu eftirliti og leggur áherslu á að efla opinbera umræðu um dýravelferð.

Dýraverndarsambandið á fulltrúa í fagráði um velferð dýra og á fulltrúa í samstarfsráði Matvælastofnunar.

Sambandið er aðili að Eurogroup for Animals og er aðili að Landvernd.

Merki DÍS er hannað af Stefáni Yngva Péturssyni. Merkið sýnir heimskautarefinn, fyrsta landspendýrið á Íslandi.

Um Dýraverndarsamband Íslands

Meginhlutverk DÍS samkvæmt lögum félagsins er: ​

  • Að standa vörð um lögvernd dýra og stuðla að góðri lagasetningu og reglubundnu opinberu eftirliti til verndar dýrum.​​

  • Að vinna að bættri velferð dýra, taka virkan þátt í umræðu um málefni þeirra á opinberum vettvangi og stuðla að málefnalegri umræðu um dýravelferð. 

  • Að beita sér fyrir fræðslu og upplýsingamiðlun um góða meðferð dýra og hvetja skóla, félagasamtök og einstaklinga alla að auka og efla velferð þeirra.