Fundað með MAST vegna eftirlits með dýravelferð

24. maí 2023

Stjórn DÍS átti fund með Matvælastofnun (MAST) mánudaginn 22. maí vegna tveggja dýravelferðarmála sem fjallað hefur verið um í fjölmiðlum að undanförnu og skorts á viðbrögðum frá stofnuninni, sérstaklega hvað varðar að forða dýrum sem eru í neyð.

​Hér er verið að vísa í slæman aðbúnað sauðfjár á Höfða í Þverárhlíð og slæman aðbúnað hrossa í Arnarfirði.

​Áhersla var lögð á tafarlausar úrbætur og breytt verklag í eftirliti með velferð dýra.

​Á fundinum lýsti MAST yfir áhuga á að vinna að gerð fræðsluefnis í samvinnu við DÍS. Áætlaður er fundur í haust vegna þess.

Í byrjun júní er áformaður annar fundur með stofnuninni um búfjáreftirlitið og áður framkomnar tillögur DÍS um uppstokkun á dýraeftirlitinu byggðar á ítarlegri úttekt DÍS.

Því verður svo fylgt frekar eftir við Matvælaráðuneytið.

Til baka

Previous
Previous

Dýraverndari ársins 2022