4. september 2023
Stjórn Dýraverndarsambands íslands (DÍS) harmar að hvalveiðar skuli hefjast að nýju. Stjórnin áréttar þá afstöðu sína að brýnt sé, út frá dýravelferðarsjónarmiðum, að hvalveiðum við Ísland ljúki alfarið á þessu ári.
Starfshópur matvælaráðherra komst í síðustu viku að þeirri niðurstöðu að ekki væri hægt að útiloka að tillögur Hvals hf um betrumbætur á veiðiaðferðum gætu leitt til færri frávika. Í framhaldinu ákvað ráðherra að framlengja ekki frekar það veiðihlé sem hún setti á með reglugerð í júní en heimila þess í stað veiðarnar í september.
DÍS telur engar líkur á því að breytingarnar hjá Hval hf dugi til að standa með viðunandi hætti að þessum veiðum út frá dýravelferð. Úr því sem komið er, er brýnt að eftirlitið með veiðunum í september verði ítarlegt og öflugt. Afar mikilvægt er að nýrri reglugerð ráðherra um hvalveiðar verði fylgt fast eftir og brugðist ákveðið við í samræmi við lög þegar hvalur deyr ekki samstundis við veiðar.
Dýraverndarsamband Íslands skorar á ráðherra og ríkisstjórn, nú þegar veiðileyfi Hvals hf er að renna út, að sjá til þess að þetta verði allra síðasta árið þar sem hvalir þjást í viðskiptaskyni við Ísland.
Stjórn Dýraverndarsambands Íslands
Til baka
Ályktun Dýraverndarsambands Íslands vegna hvalveiða
Previous
Previous
Vanhöld hrossa á bænum Laugabóli í Arnarfirði
Next
Next

