Ríkisendurskoðun hefur birt skýrslu um eftirlit Matvælastofnunar (MAST) með velferð búfjár. Niðurstaða skýrslunnar er í grundvallaratriðum í takti við þá úttekt sem DÍS lét vinna veturinn 2022-2023 og kynnt var í mars sl., ,,Bætt dýravelferð’’. Fram kemur í skýrslu DÍS að gefnir séu ítrekaðir frestir til betrumbóta og dýrin því látin þjást sem er andstætt lögum um velferð dýra.
Í skýrslu Ríkisendurskoðunar segir eftirfarandi:
,,MAST þarf að leggja aukna áherslu á að stjórnsýsluleg framkvæmd verði ekki á kostnað velferðar dýra.”
Að mati DÍS er bráðnauðsynlegt að fjölga dýraeftirlitsmönnum og að eftirlitstíðni verði aukin til að eftirlitið virki á fyrirbyggjandi hátt og veiti aðhald. Of langur tími líður milli eftirlitsheimsókna almennt í búfjárhaldi og auka þarf sömuleiðis eftirlit með þauleldi. Í skýrslu DÍS er jafnframt bent á að málshraði þarf að vera mun meiri og dýrin eigi að njóta vafans sem er sama niðurstaða og í skýrslu Ríkisendurskoðunar.
Að mati DÍS þurfi að færa eftirlit með velferð dýra frá MAST og koma eftirlitinu fyrir í sérstakri Dýravelferðarstofu, til að styrkja dýravelferðaráherslur og koma í veg fyrir þá hagsmunaárekstra sem felast í því að hafa dýravelferð og matvælaeftirlit undir sama hatti. Það sést einna best á því að halaklippingar á grísum eru enn framkvæmdar hér á landi í stórum stíl af hálfu svínabænda og MAST upplýst um það - þó slíkt sé bannað með lögum - en stofnunin bregst ekki við.
Það er von DÍS að þessi úttekt Ríkisendurskoðunar verði, ásamt með úttekt DÍS fyrr á árinu, til þess að nauðsynlegar breytingar verði gerðar í þágu dýravelferðar.
Stjórn DÍS
Til baka
Skýrsla Ríkisendurskoðunar um eftirlit MAST með velferð búfjár styður framkomið álit DÍS
Previous
Previous
Yfirlýsing DÍS vegna álits umboðsmanns Alþingis um frestun hvalveiða
Next
Next

