Deyfing svína með koltvíoxíðgasi er ómannúðleg og grimm. Gasið er ertandi en það myndar sýru í öndunarvegi dýranna sem veldur þeim þjáningu og ótta. Einnig veldur gasið mikilli köfnunartilfinningu og dýrin berjast um í ofboði til að ná andanum þangað til þau á endanum kafna. Þessi meðferð á dýrum er óásættanleg og á ekki að sjást í nútímasamfélagi. Samkvæmt lögum 55/2013 um velferð dýra á aflífun dýra að vera skjót og sársaukalaus. Deyfing svína með koltvíoxíðgasi samræmist þessu ákvæði ekki þar sem dýrin há í raun dauðastríð. Nauðsynlegt er að fundnar verði mannúðlegri lausnir við deyfingu svína fyrir aflífun. Dýraverndarsamband Íslands fer fram á að deyfing svína með koltvíoxíðgasi verði stöðvuð og bönnuð með lögum. Stjórn Dýraverndarsambands Íslands Ársskýrsla stjórnar DÍS 2022-2023 Í skýrslunni er farið yfir verkefni stjórnar Dýraverndarsambandsins frá ágúst 2022 til maí 2023. Verkefnin hafa verið bæði viðamikil og fjölbreytt og ljóst er að það er mikil þörf fyrir öfluga rödd dýravelferðar í samfélaginu. Í lokin er umfjöllun um Dýraverndara ársins 2022. Skýrslan var flutt á aðalfundi félagsins þann 25. maí síðastliðinn. Stjórn Dýraverndarsambandsins (DÍS) átti fund með Matvælastofnun (MAST) föstudaginn 9. júní. Tilefni fundarins var að ræða nánar niðurstöður úttektarinnar sem Ágúst Ólafur Ágústsson lög- og hagfræðingur vann fyrir DÍS um reynslu af búfjáreftirliti ásamt tillögum til úrbóta og var kynnt á málþingi sem haldið var í Öskju 14. mars s.l. Hér má lesa skýrsluna. Um er að ræða 17 tillögur til úrbóta en áhersla var lögð á að ræða eftirfarandi tillögur á fundinum og viðbrögð MAST við þeim: Tillaga nr. 1 Setja á fót Dýravelferðarstofu Íslands og þannig aðskilja eftirlit með dýravelferð frá starfsemi MAST. Þannig yrði dýravelferð gert hærra undir höfði og klippt yrði á hugsanleg hagsmunatengsl matvælaframleiðslu og dýravelferðar. Tillaga nr. 2 Leyfisskylda allt búfjárhald á Íslandi. Tillaga nr. 5 Auka þarf eftirlitstíðni nýrrar Dýravelferðarstofu, ekki síst óboðað eftirlit með alifuglum og svínum sem er langt um sjaldgæfara en þegar kemur að öðrum dýrategundum. Tillaga nr. 6 Tryggja skilvirka og skjóta verkferla og aukinn málshraða þegar kemur grunur um illa meðferð á dýrum. Á fundinum var einnig farið yfir stöðu mála að Höfða í Borgarbyggð og er málið í ferli. DÍS árétti að staða sem þessi væri óviðunandi og að úrbætur þyldu enga bið. Á nýliðnum aðalfundi DÍS var veitt viðurkenning DÍS, Dýraverndari ársins. Viðurkenningin er veitt fyrir ötult starf í þágu velferðar dýra. Dýraverndari ársins 2022 er Steinunn Árnadóttir. Steinunni hlotnast nafnbótin Dýraverndari ársins 2022 fyrir einstakt hugrekki, seiglu og áræðni í dýravelferðarmálum síðasta árið. Með ötulu starfi sínu og hugrekki vakti Steinunn athygli á vanrækslu dýra í Borgarbyggð sl. haust og í vor og einnig á Vestfjörðum. Hugrekki og áræðni Steinunnar í þeim málum sem hún hefur komið að er einstakt. Seiglan, fylgja málunum eftir og hætta ekki fyrr en dýrum er komið í öruggt skjól, hún er eftirtektarverð. Steinunn birti myndir af hrossum í miklum vanhöldum í Borgarbyggð síðasta sumar. Áður hafði hún reynt í marga mánuði að ná eyrum eftirlitsaðila, Matvælastofnunar (MAST), um ástand dýranna eða frá því snemma sl. vor. Í margar vikur reyndi hún, án árangurs, að fá hrossin sett út á haga til bötunar og bættrar velferðar. Hugrekki Steinunnar að bjarga dýrum í sárri neyð hefur haft smitandi áhrif á almenning „að líta ekki undan þegar vart verður við illa meðferð dýra“. Í málinu í Borgarbyggð í haust var athygli vakin á því hvernig yfirvöld, MAST, lögreglan og matvælaráðuneytið ná ekki utan um málefni er varða dýravelferð. Svo slæleg voru vinnubrögð yfirvalda í málinu að Ríkisendurskoðun ákvað sl. haust að hefja frumkvæðisúttekt á eftirliti MAST með velferð dýra. Stjórn DÍS óskar Steinunni innilega til hamingju með viðurkenninguna, hún er sannarlega vel að henni komin! |