Dýraverndarsamband Íslands
  • Um félagið
    • Um DÍS
    • Stjórn DÍS
    • Lög DÍS
    • Aðalfundir & ársskýrslur
    • Saga DÍS
    • Dýraverndarinn
    • ENGLISH
  • Starfsemi DÍS
    • Ályktanir
    • Umsagnir
    • Dýraverndari ársins
    • Bætt dýravelferð - skýrsla
  • Þarftu aðstoð vegna dýrs?
  • Styðja DÍS
    • Gerast félagi
    • Dýraverndarar
  • Um félagið
    • Um DÍS
    • Stjórn DÍS
    • Lög DÍS
    • Aðalfundir & ársskýrslur
    • Saga DÍS
    • Dýraverndarinn
    • ENGLISH
  • Starfsemi DÍS
    • Ályktanir
    • Umsagnir
    • Dýraverndari ársins
    • Bætt dýravelferð - skýrsla
  • Þarftu aðstoð vegna dýrs?
  • Styðja DÍS
    • Gerast félagi
    • Dýraverndarar

Dýraverndari ársins 2022

27/5/2023

 
Picture
Á nýliðnum aðalfundi DÍS var veitt viðurkenning DÍS, Dýraverndari ársins. Viðurkenningin er veitt fyrir ötult starf í þágu
​velferðar dýra. 

Dýraverndari ársins 2022 er Steinunn Árnadóttir.

Steinunni hlotnast nafnbótin Dýraverndari ársins 2022 fyrir einstakt hugrekki, seiglu og áræðni í dýravelferðarmálum síðasta árið. 

Með ötulu starfi sínu og hugrekki vakti Steinunn athygli á vanrækslu dýra í Borgarbyggð sl. haust og í vor og einnig á Vestfjörðum. Hugrekki og áræðni Steinunnar í þeim málum sem hún hefur komið að er einstakt. Seiglan, fylgja málunum eftir og hætta ekki fyrr en dýrum er komið í öruggt skjól, hún er eftirtektarverð. 

Steinunn birti myndir af hrossum í miklum vanhöldum í Borgarbyggð síðasta sumar. Áður hafði hún reynt í marga mánuði að ná eyrum eftirlitsaðila, Matvælastofnunar (MAST), um ástand dýranna eða frá því snemma sl. vor. Í margar vikur reyndi hún, án árangurs, að fá hrossin sett út á haga til bötunar og bættrar velferðar.

Hugrekki Steinunnar að bjarga dýrum í sárri neyð hefur haft smitandi áhrif á almenning
​„að líta ekki undan þegar vart verður við illa meðferð dýra“.

Í málinu í Borgarbyggð í haust var athygli vakin á því hvernig yfirvöld, MAST, lögreglan og matvælaráðuneytið ná ekki utan um málefni er varða dýravelferð. Svo slæleg voru vinnubrögð yfirvalda í málinu að Ríkisendurskoðun ákvað sl. haust að hefja frumkvæðisúttekt á eftirliti MAST með velferð dýra.

Stjórn DÍS óskar Steinunni innilega til hamingju með viðurkenninguna, hún er sannarlega vel að henni komin!





Comments are closed.
DÝRAVERNDARSAMBAND ÍSLANDS   |   GRENSÁSVEGI 8, 108 REYKJAVÍK  |  DYRAVERND@DYRAVERND.IS