Komið hefur fram í fjölmiðlum að Matvælastofnun (MAST) hafi borist tilkynningar um að 8 fylfullar hryssur hafi drepist í tengslum við blóðtöku í fyrrasumar. Ástæða þessa er talin vera reynsluleysi þeirra erlendu dýralækna sem framkvæmdu blóðtökuna á vegum Ísteka ehf. Dýraverndarsambandi Íslands (DÍS) hefur borist áreiðanlegar upplýsingar um að mun fleiri hryssur hafi drepist í tengslum við blóðtöku í fyrra. Á að minnsta kosti 10 bæjum hafi ein hryssa eða fleiri drepist í tengslum við blóðtöku og á einum af þessum 10 bæjum fjórar hryssur. Dýraverndarsambandið hefur einnig fengið ábendingu um að hryssa hafi óvart verið stungin í gegnum barka af óreyndum dýralækni í fyrrasumar. Viðkomandi dýralæknir hafi ekki brugðist við með því að að aflífa hryssuna eins og skal gera skv. lögum 55/2013 um velferð dýra og reglugerð 900/2022 um blóðtöku úr fylfullum hryssum, heldur lá hún í allt að 10 mínútur meðan henni blæddi út. Um er að ræða alvarlegt dýraníð. Í sumar verða óreyndir dýralæknar að sinna blóðtökum á hryssunum sem eru flestar ekkert eða lítið tamdar. Verði mistök er mikil hætta á að það verði hryssu að aldurtila. Um er að ræða mjög óvenjulegar og oft erfiðar aðstæður og mikil hætta getur skapast fyrir hryssurnar séu dýralæknarnir óreyndir. Dýraverndarsamband Íslands hefur lagst alfarið gegn blóðtöku úr fylfullum hryssum af dýravelferðarástæðum (sjá nánar hér). Miðað við þær upplýsingar sem nú eru fyrir hendi fer Dýraverndarsamband Íslands fram á tafarlausa stöðvun á blóðtöku úr fylfullum hryssum og að öll þau tilvik þar sem hryssa drapst í tengslum við blóðtöku í fyrrasumar verði rannsökuð og viðbrögð við þeim í samræmi við lög. Stjórn Dýraverndarsambands Íslands Stjórn DÍS hefur sent neðangreint bréf á Matvælastofnun (MAST) vegna alvarlegs ástands sauðfjár frá bænum Höfða í Þverárhlíð sem fjallað hefur verið um í fjölmiðlum í dag. DÍS hefur rætt aðbúnað og vanrækslu dýranna á þessum stað áður við MAST, með bréfaskriftum og á tveimur fundum með yfirstjórn MAST og með forstjóra. Málið er í ferli hjá stofnuninni og hefur DÍS beðið eftir aðgerðum en ekki er hægt að bíða lengur, það verður að verja velferð dýranna. Efni: Alvarleg vanhirða á sauðfé frá bænum Höfða í Þverárhlíð í Borgarbyggð Dýraverndarsamband Íslands hefur fengið nýjar upplýsingar um áframhaldandi alvarlegt ástand sauðfjár á bænum Höfða í Þverárhlíð. Upplýsingarnar varða fé sem er á útigangi í Norðurárdal í Borgarbyggð. Myndefnið sem fylgdi tilkynningunni sýnir fullorðnar ær í tvöföldum eða þreföldum reifum, sumar haltrandi (mögulega um að ræða fótbrot), kind með júgurbólgu og ómerkt lömb. Ástandið er grafalvarlegt, hér þarf (eins og DÍS hefur áður bent á) að bregðast skjótt við og verja velferð dýranna. Sveitarfélagið stefnir á að smala ágangsfénu og koma því í afrétt (sbr. fréttatilkynning frá sveitarfélaginu), en vert er að benda á að ekki er hægt að sleppa veiku, vanhirtu og ómerktu fé á afrétt, það stenst ekki lög um dýravelferð. MAST þarf að bregðast við vegna þessa ástands sem er með öllu óviðunandi og í ósamræmi við reglugerð nr. 1066/2014 um velferð sauðfjár og geitfjár. Dýr eiga ekki að þjást sbr. lög nr. 55/2013 um velferð dýra. Stjórn DÍS Stjórn DÍS fagnar þeirri ákvörðun matvælaráðherra að ákveða að stöðva veiðar á langreyðum til 31. ágúst nk. Sú ákvörðun er tekin í framhaldi af afdráttarlausri niðurstöðu fagráðs um dýravelferð sem birt var í gær. Niðurstaða ráðsins var að engin mannúðleg leið væri til að tryggja skjótan dauða langreyða við veiðar. Þótt um sé að ræða tímabundna stöðvun veiðanna út sumarið þá má ætla að það dugi til að koma í veg fyrir að nokkur langreyður verði drepin á þessu ári og er það sérstakt fagnaðarefni. DÍS hefur um langt árabil farið fram á að hvalveiðum verði hætt af dýravelferðarsjónarmiðum og er þetta afar mikilvægt skref í þá átt að binda varanlega enda á veiðarnar. Til þess að svo megi verða er þó mikilvægt að úrelt lög um hvalveiðar verði felld úr gildi þannig að ákvörðun um þessar veiðar sé ekki undir hverjum og einum ráðherra komin hverju sinni heldur sé ekki lagalega mögulegt að hefja þær að nýju. Stjórn Dýraverndarsambands Íslands Deyfing svína með koltvíoxíðgasi er ómannúðleg og grimm. Gasið er ertandi en það myndar sýru í öndunarvegi dýranna sem veldur þeim þjáningu og ótta. Einnig veldur gasið mikilli köfnunartilfinningu og dýrin berjast um í ofboði til að ná andanum þangað til þau á endanum kafna. Þessi meðferð á dýrum er óásættanleg og á ekki að sjást í nútímasamfélagi. Samkvæmt lögum 55/2013 um velferð dýra á aflífun dýra að vera skjót og sársaukalaus. Deyfing svína með koltvíoxíðgasi samræmist þessu ákvæði ekki þar sem dýrin há í raun dauðastríð. Nauðsynlegt er að fundnar verði mannúðlegri lausnir við deyfingu svína fyrir aflífun. Dýraverndarsamband Íslands fer fram á að deyfing svína með koltvíoxíðgasi verði stöðvuð og bönnuð með lögum. Stjórn Dýraverndarsambands Íslands |