Dýraverndarsamband Íslands
  • Um félagið
    • Um DÍS
    • Stjórn DÍS
    • Lög DÍS
    • Aðalfundir & ársskýrslur
    • Saga DÍS
    • Dýraverndarinn
    • ENGLISH
  • Starfsemi DÍS
    • Ályktanir
    • Umsagnir
    • Dýraverndari ársins
    • Bætt dýravelferð - skýrsla
  • Þarftu aðstoð vegna dýrs?
  • Styðja DÍS
    • Gerast félagi
    • Dýraverndarar
  • Um félagið
    • Um DÍS
    • Stjórn DÍS
    • Lög DÍS
    • Aðalfundir & ársskýrslur
    • Saga DÍS
    • Dýraverndarinn
    • ENGLISH
  • Starfsemi DÍS
    • Ályktanir
    • Umsagnir
    • Dýraverndari ársins
    • Bætt dýravelferð - skýrsla
  • Þarftu aðstoð vegna dýrs?
  • Styðja DÍS
    • Gerast félagi
    • Dýraverndarar

Yfirlýsing DÍS vegna deyfingar á svínum með koltvíoxíðgasi

20/6/2023

 
Picture
Deyfing svína með kolt­víoxíðgasi er ómannúðleg og grimm. Gasið er ertandi en það myndar sýru í öndunarvegi dýranna sem veldur þeim þjáningu og ótta. Einnig veldur gasið mikilli köfnunartilfinningu og dýrin berjast um í ofboði til að ná andanum þangað til þau á endanum kafna. Þessi meðferð á dýrum er óásættanleg og á ekki að sjást í nútímasamfélagi. 

​
Samkvæmt lögum 55/2013 um velferð dýra á aflífun dýra að vera skjót og sársaukalaus. 

Deyfing svína með kolt­víoxíðgasi samræmist þessu ákvæði ekki þar sem dýrin há í raun dauðastríð.
Nauðsynlegt er að fundnar verði mannúðlegri lausnir við deyfingu svína fyrir aflífun.
​

Dýraverndarsamband Íslands fer fram á að deyfing svína með kolt­víoxíðgasi verði stöðvuð og bönnuð með lögum.

Stjórn Dýraverndarsambands Íslands




Comments are closed.
DÝRAVERNDARSAMBAND ÍSLANDS   |   GRENSÁSVEGI 8, 108 REYKJAVÍK  |  DYRAVERND@DYRAVERND.IS