Stjórn Dýraverndarsambandsins (DÍS) átti fund með Matvælastofnun (MAST) föstudaginn 9. júní. Tilefni fundarins var að ræða nánar niðurstöður úttektarinnar sem Ágúst Ólafur Ágústsson lög- og hagfræðingur vann fyrir DÍS um reynslu af búfjáreftirliti ásamt tillögum til úrbóta og var kynnt á málþingi sem haldið var í Öskju 14. mars s.l. Hér má lesa skýrsluna. Um er að ræða 17 tillögur til úrbóta en áhersla var lögð á að ræða eftirfarandi tillögur á fundinum og viðbrögð MAST við þeim: Tillaga nr. 1 Setja á fót Dýravelferðarstofu Íslands og þannig aðskilja eftirlit með dýravelferð frá starfsemi MAST. Þannig yrði dýravelferð gert hærra undir höfði og klippt yrði á hugsanleg hagsmunatengsl matvælaframleiðslu og dýravelferðar. Tillaga nr. 2 Leyfisskylda allt búfjárhald á Íslandi. Tillaga nr. 5 Auka þarf eftirlitstíðni nýrrar Dýravelferðarstofu, ekki síst óboðað eftirlit með alifuglum og svínum sem er langt um sjaldgæfara en þegar kemur að öðrum dýrategundum. Tillaga nr. 6 Tryggja skilvirka og skjóta verkferla og aukinn málshraða þegar kemur grunur um illa meðferð á dýrum. Á fundinum var einnig farið yfir stöðu mála að Höfða í Borgarbyggð og er málið í ferli. DÍS árétti að staða sem þessi væri óviðunandi og að úrbætur þyldu enga bið. Comments are closed.
|