Hvert á að leita aðstoðar?
Dýraverndarsamband Íslands fær oft fyrirspurnir frá fólki um land allt sem hefur orðið vart illrar meðferðar á dýrum, einkum gæludýrum og búfénaði. Stundum er um grun frekar en vissu að ræða. Samt sem áður þarf að sinna öllum slíkum málum og láta viðkomandi eftirlitsaðila eða lögreglu vita enda slíkt skylt, samkvæmt dýravelferðarlögum.
Í lögum 55/2013 um velferð dýra er kveðið á um hjálparskyldu okkar gagnvart dýrum í neyð og ber að veita sjúkum, særðum og bjargarlausum dýrum umönnun og aðstoð eftir föngum.
Dýraverndarsambandið vill gjarnan aðstoða fólk við að vinna úr málum þar sem velferð dýra er ógnað og leiðbeinir um leiðir til úrlausna, en félagið hefur ekki lagalega heimild til beinna afskipta, svo sem að fara heim til fólks eða taka frá því dýr. Það geta eftirlitsaðilar og lögregla aðeins gert.
Hægt er að hafa samband við DÍS á [email protected].

Algengar spurningar varðandi dýr í neyð
ÉG HEF GRUN UM ILLA MEÐFERÐ Á DÝRI
Matvælastofnun (MAST)
MAST er sú ríkisstofnun sem hefur yfirumsjón með dýravelferðarmálum á Íslandi.
MAST tekur við ábendingum hér um illa meðferð á dýrum.
Mikilvægt er að taka skjáskot af innsendri ábendingu til MAST til sönnunar um að slíkt hafi verið gert.
Lögreglan
Hafa skal samband við lögreglu í síma 112 ef dýr hafa verið sköðuð eða þau lent í slysi og/eða talið er að um glæpsamlega meðferð sé að ræða. Þá er mikilvægt að gerð sé lögregluskýrsla sem nýtist ef kæra er lögð fram gegn aðila sem hefur orðið uppvís að slæmri meðferð dýrs eða dýra.
Viljum minna á að mikilvægt er að taka niður nafn þess sem talað er við hjá lögreglunni ásamt dagsetningu og tíma svo rekjanleiki málsins sé tryggður fari það lengra.

ÉG FANN SLASAÐ DÝR
Lögreglan
Hafa skal samband við lögreglu í síma 112 ef dýr hafa verið sköðuð, þau lent í slysi og/eða talið er að um glæpsamlega meðferð sé að ræða. Þá er mikilvægt að gerð sé lögregluskýrsla sem nýtist ef kæra er lögð fram gegn aðila sem hefur orðið uppvís að slæmri meðferð dýrs eða dýra.
Viljum minna á að mikilvægt er að taka niður nafn þess sem talað er við hjá lögreglunni ásamt dagsetningu og tíma svo rekjanleiki málsins sé tryggður fari það lengra.
Dýraeftirlit sveitarfélaga
Hægt er að leita til dýraeftirlits hjá sveitarfélögunum vegna villtra dýra sem eru slösuð.
Dýralæknar
Mikilvægt er að leita til dýraspítala vegna slasaðra dýra sem finnast, dýralæknar geta liðsinnt eða gefið ráðleggingar. Utan opnunartíma er hægt að hafa samband í gegnum neyðarnúmer dýralækna, nánari upplýsingar um símanúmer hér.

ég fann TÝNT EÐA heimilislaust dýr eða lausan hund án eftirlits
Sveitarfélög
Á vegum sveitarfélaga er það heilbrigðiseftirlitið sem er m.a. með hundaeftirlitsmenn sem starfa vegna leyfis sveitarfélaga til að halda skráningarskyld dýr og vegna dýra sem sleppa. Hægt er að leita til þeirra ef dýr finnst.
Dýrfinna - Hundasveitin
Hundasveitin var óformlega stofnuð árið 2019 í þeim tilgangi að leita með virkum hætti að týndum hundum og öðrum dýrum og veita ráðleggingar við leitir. Mögulega er leit í gangi að viðkomandi dýri. Hægt er að hafa samband við Hundasveitina hér.
Kattholt
Ef köttur finnst og talið að hann sé týndur má fara með hann í Kattholt í Reykjavík á auglýstum opnunartíma.
Nánari upplýsingar má finna á vefsíðu Kattholts.
Samfélagsmiðlar
Samfélagsmiðlar hafa reynst vel við að koma týndum dýrum aftur til eigenda sinna.
Hér er ein slík síða: Týnd/fundin dýr

dýrið mitt er týnt
Dýrfinna - Hundasveitin
Hundasveitin var óformlega stofnuð árið 2019 í þeim tilgangi að leita með virkum hætti að týndum hundum og veita ráðleggingar við leitir. Hægt er að hafa samband við Hundasveitina hér.
Dýrfinna Hundasveitin sinnir fjölbreyttum verkefnum ásamt því að standa fyrir virkri leit af týndum hundum en félagið veitir ráðleggingar við leitir af gæludýrum, álestur dýra til að athuga örmerki og að koma dýrum heim til sín, lífs eða liðnum.
Kattholt
Kattholt heldur úti síðu á heimasíðu félagsins þar sem hægt er að auglýsa eftir týndum köttum.
Sjá nánar á heimasíðu Kattholts.
Samfélagsmiðlar
Samfélagsmiðlar hafa reynst vel við að finna týnd dýr og hægt að auglýsa eftir týndu dýri.

ég þarf að finna heimili fyrir dýr
Dýrahjálp Íslands
Þegar ekki tekst að finna dýri heimili og ekki er hægt að halda dýrinu vegna skyndilegra breytinga er hægt að leita til Dýrahjálpar Íslands.
Dýrahjálp Íslands er félag sjálfboðaliða sem leitast við að sjá dýrum sem þarfnast heimilis fyrir skjóli og stofna til þess dýraathvarf. Frá stofnun félagsins í maí 2008 hefur Dýrahjálp Íslands aðstoðað yfir 7.000 dýr í heimilisleit.

ég vil tilkynna ónæði vegna dýrahalds
Matvælastofnun (MAST)
MAST er sú ríkisstofnun sem hefur yfirumsjón með dýravelferðarmálum á Íslandi.
MAST tekur við ábendingum hér.