Komið hefur fram í fjölmiðlum að Matvælastofnun (MAST) hafi borist tilkynningar um að 8 fylfullar hryssur hafi drepist í tengslum við blóðtöku í fyrrasumar. Ástæða þessa er talin vera reynsluleysi þeirra erlendu dýralækna sem framkvæmdu blóðtökuna á vegum Ísteka ehf. Dýraverndarsambandi Íslands (DÍS) hefur borist áreiðanlegar upplýsingar um að mun fleiri hryssur hafi drepist í tengslum við blóðtöku í fyrra. Á að minnsta kosti 10 bæjum hafi ein hryssa eða fleiri drepist í tengslum við blóðtöku og á einum af þessum 10 bæjum fjórar hryssur. Dýraverndarsambandið hefur einnig fengið ábendingu um að hryssa hafi óvart verið stungin í gegnum barka af óreyndum dýralækni í fyrrasumar. Viðkomandi dýralæknir hafi ekki brugðist við með því að að aflífa hryssuna eins og skal gera skv. lögum 55/2013 um velferð dýra og reglugerð 900/2022 um blóðtöku úr fylfullum hryssum, heldur lá hún í allt að 10 mínútur meðan henni blæddi út. Um er að ræða alvarlegt dýraníð. Í sumar verða óreyndir dýralæknar að sinna blóðtökum á hryssunum sem eru flestar ekkert eða lítið tamdar. Verði mistök er mikil hætta á að það verði hryssu að aldurtila. Um er að ræða mjög óvenjulegar og oft erfiðar aðstæður og mikil hætta getur skapast fyrir hryssurnar séu dýralæknarnir óreyndir. Dýraverndarsamband Íslands hefur lagst alfarið gegn blóðtöku úr fylfullum hryssum af dýravelferðarástæðum (sjá nánar hér). Miðað við þær upplýsingar sem nú eru fyrir hendi fer Dýraverndarsamband Íslands fram á tafarlausa stöðvun á blóðtöku úr fylfullum hryssum og að öll þau tilvik þar sem hryssa drapst í tengslum við blóðtöku í fyrrasumar verði rannsökuð og viðbrögð við þeim í samræmi við lög. Stjórn Dýraverndarsambands Íslands Comments are closed.
|