Ræða Ingiveigar Gunnarsdóttur, dýraverndara ársins

21. október 2026

Ingiveig Gunnarsdóttir, stofnandi dýraverndarsamtakana Dýravaktin, hlaut viðurkenninguna dýraverndari ársins 2025 fyrir ötult starf í þágu dýra á aðalfundi Dýraverndarsambands Íslands þann 20. maí síðastliðinn.

Hér má lesa nánar um störf Ingiveigar í þágu velferðar dýra.

Fyrir tilstuðlan Dýravaktarinnar hefur andfuglum á höfuðborgarsvæðinu verið tryggð reglubundin fóðrun undanfarin ár sem er ómetanlegt fyrir fuglana sem reiða sig að miklu leyti á fóðurgjafir til að komast af yfir vetrarmánuðina.

Hér má lesa ræðu Ingiveigar sem hún flutti þegar hún tók við viðurkenningu DÍS:


Ræða Ingiveigar Gunnarsdóttur

Það er mér mikill heiður að standa hér í dag.

Ég tek á móti þessari viðurkenningu auðmjúk og þakklát í nafni dýranna sem við berjumst fyrir.

Þau hafa ekki rödd á mannamáli, svo það er okkar hlutverk að vera málsvari þeirra.

Í hugann koma brot úr hinu kunna ljóði skáldkonunnar Huldu:

„Grágæsa móðir!
ljáðu mér vængi“,
svo ég geti svifið
suður yfir höf.

…Langt í burt ég líða vil,
ljá mér samfylgd þína!
Enga vængi á ég til utan löngun mína...

Hjá Huldu er fuglinn táknmynd frelsisins – hann er fleygur og getur flogið burt úr dimmunni og inn í ljósið. 

Ísland gegnir mikilvægu alþjóðlegu hlutverki sem griðland og búsvæði fugla. Við erum aðilar að alþjóðlegum samningum þar um, þar á meðal Ramsar-samningnum frá 1977 um verndun votlendis. En staðreyndirnar blasa við okkur: síðan á 19. öld hefur 85% af votlendi jarðar verið raskað. Hér á landi er lítið eftir af óröskuðu votlendi á láglendi.

Þessi ágengni mannsins á náttúruauðlindir, breytt landnýting og loftslagsbreytingar herja á villtar fuglategundir. Þrengt er að búsvæðum þeirra, farleiðir raskast og fæðuöryggi þeirra er ógnað. Þeir heyja harðari lífsbaráttu.

Sjálf hef ég farið krókaleiðir að dýravelferð, leið sem hefur alltaf verið drifin áfram af ástríðu fyrir náttúrunni og velferð dýra. 

Sem skipuleggjandi náttúrulífsferða fyrir Íslendinga til margra ára naut ég þeirra forréttinda að sjá undur veraldar í návígi – líffjölbreytileika Galápagoseyja, Amazon regnskógarins, Kosta Ríka og Madagaskar.

Meistaranámið í umhverfis- og auðlindafræði í HÍ kenndi mér hve dýnamískt en jafnframt brothætt lífið er. Ég sá svart á hvítu hvernig lífsafkoma dýra er nátengd okkar eigin ákvörðunum. Þessi þekking breytti áhuga í ástríðu, og ástríðu í aðgerðir.

Aðgerðirnar hófust fyrir alvöru veturinn 2022. Ég lagði við hlustir og skynjaði neyð búfénaðar á bæ einum í Borgarfirði en kveinstafir dýranna héldu vöku fyrir nágrönnum á svæðinu. Ég stofnaði hópinn Björgum Dýrum í Neyð á samfélagsmiðlum og efndi til viðburðar til að þrýsta á MAST um aðgerðir. 

Dýrin geta grátið eins og við.

Fuglarnir treysta á okkur

Í tæp hundrað ár höfðu andfuglar og álftir í borgarlandinu byggt tilveru sína á brauðgjöfum almennings. Árið 1920 og aftur upp úr 1950 var fjölmörgum andategundum, álftum og grágæsum sleppt á Tjörnina til að glæða hana lífi. Þessir fuglar voru vængstýfðir og þeim tryggð fóðrun tvisvar á dag árið um kring.

Grágæsirnar og álftirnar lærðu að treysta á okkur. Þær eru íhaldssamar, nota sömu vetrarstöðvar kynslóð eftir kynslóð og kenna ungum sínum það sama. Skipulagðri fóðrun á vegum Reykjavíkurborgar var hætt á níunda áratug síðustu aldar með slæmum afleiðingum fyrir tjarnarfuglana. 

Þegar vatnsfletir frjósa og þykk snjóalög hylja landið, eiga fuglarnir ekki aðgang að náttúrulegu fæði.

Rannsóknir sýna að vetrarfóðrun á orkuríkri fæðu skiptir sköpum. Þegar kólnar þurfa fuglarnir mikla orku til að viðhalda líkamshita. Skipulögð fóðrun er því oft það eina sem skilur á milli lífs og dauða. Síðastliðna 4 vetur hafa sjálfboðaliðar á vegum Dýravaktarinnar annast fóðrun þúsunda vatnafugla á stórhöfuðborgarsvæðinu.

Skylda okkar að hjálpa dýrum í neyð

Kæru vinir. Við lifum á tímum þar sem dýravelferð er ekki lengur valkvæð; hún er nauðsynleg og það er siðferðileg skylda okkar að hjálpa dýrum í neyð. 

Við getum ekki snúið baki við dýrum sem við höfum sjálf laðað til okkar og gert háð okkur.

Þessi viðurkenning sem Dýraverndari ársins er mér ómetanleg hvatning. Hún hvetur mig til að halda áfram að læra, miðla, fóðra og berjast fyrir velferð og réttindum dýra.

Takk kærlega Dýraverndarsamband Íslands og takk öll sem hafið staðið með mér í þessari vegferð sjálfboðaliðar og ráðgjafar. 

Til baka

Next
Next

Takmörkuð réttarvernd dýra á Íslandi