9. nóvember 2026
Yfirlýsing Dýraverndarsambands Íslands
Nýlegt myndefni úr íslensku svínahaldi hefur vakið reiði og áhyggjur meðal almennings. Á myndefninu má meðal annars sjá dauða grísi innan um önnur dýr, deyjandi grísi, dýr með sár, skort á undirburði fyrir þau að róta í og aðstæður sem samrýmast illa þeim kröfum sem gildandi reglur gera um velferð svína.
Velferð svína verður að vera í forgangi
Að mati Dýraverndarsambands Íslands (DÍS) varpar myndefnið ljósi á þau alvarlegu kerfisbundnu vandamál sem geta skapast þegar framleiðslusjónarmið fá meira vægi en velferð dýra. Brýnt er að áherslum í svínahaldi verði breytt þannig að velferð svína verði í forgangi en ekki hámörkun framleiðslu.
DÍS kallar jafnframt eftir auknu gagnsæi í svínahaldi. Óásættanlegt er að starfsemin sé svo lokuð að almenningur fái fyrst innsýn í aðbúnað dýranna þegar einstaklingur grípur til þess ráðs að afla myndefnis með þessum hætti.
Búrekstur sem ekki þolir dagsins ljós er rekinn á hæpnum forsendum. Almenningur á rétt á að vita við hvaða aðstæður dýr, sem alin eru til matvælaframleiðslu, lifa og hvernig komið er fram við þau. Gagnsæi og virkt eftirlit eru þar grundvallarforsendur. DÍS telur einnig brýnt að opinbert eftirlit með þessari starfsemi verði eflt.
Óviðunandi að veita svínabændum undanþágur frá banni við halaklippingum
Það er óviðunandi að stjórnvöld hafi árum saman veitt undanþágur frá reglum sem eiga að vernda svín. Þrátt fyrir að halaklippingar séu bannaðar hefur svínabændum verið heimilt að klippa hala af nokkurra daga gömlum grísum án deyfingar.
Í stað þess að bæta aðstæður dýranna eru þau limlest til að þjóna kerfi sem byggir á hámarksframleiðslu við sem minnstan tilkostnað. Það er með öllu óásættanlegt. Dýr sem eru notuð í atvinnurekstri eiga ekki að þjást. Velferð dýra á ávallt að vera í forgangi.
Engir frekari frestir verði veittir til úrbóta
Dýraverndarsamband Íslands telur að tími undanþága og fresta í svínahaldi sé liðinn. Svínabændur hafa fengið viðbótarfrest til 1. janúar 2028 til að uppfylla kröfur reglugerðar um velferð svína.
Í ljósi þess sem nú hefur komið fram telur sambandið fullt tilefni til að sá frestur verði endurskoðaður. Að lágmarki verður að liggja fyrir að viðbótarfresturinn sé endanlegur og að engar frekari undanþágur verði veittar.

