Takmörkuð réttarvernd dýra á Íslandi
29. september 2026
Yfirlýsing Dýraverndarsambands Íslands og Samtaka um dýravelferð á Íslandi:
Dýraverndarsamband Íslands og Samtök um dýravelferð á Íslandi telja mikið skorta á almennan aðgang að réttlæti fyrir hönd dýra hér á landi. Dýraverndarsamtök geta ekki borið ákvarðanir Matvælastofnunar (MAST) sem fer með eftirlit með velferð dýra, undir æðra stjórnvald.
Möguleikar dýraverndarsamtaka til að vera málsvarar dýra innan stjórnsýslunnar eru því takmarkaðir eða engir. Slík staða samræmist illa því mikilvæga hlutverki sem dýraverndarsamtök gegna við að gæta hagsmuna og velferðar dýra.
Ákvörðun MAST um veitingu leyfis til blóðmerahalds kært til ráðuneytis
Í sumar lögðu íslensk og erlend dýraverndarsamtök fram stjórnsýslukæru til atvinnuvegaráðuneytisins vegna ákvörðunar MAST um að veita Ísteka hf. skilyrt starfsleyfi til blóðtöku úr fylfullum hryssum vegna lyfjaframleiðslu. Í kærunni var þess krafist að ákvörðun MAST yrði ógilt eða til vara, endurskoðuð.
Að mati samtakanna stenst blóðmerahald ekki skilyrði þeirrar reglugerðar sem starfsemin fellur undir. Skýrt er kveðið á um að ekki skuli heimila notkun á dýrum í vísindaskyni ef unnt er að ná sama markmiði með öðrum aðferðum. Að mati samtakanna eru slíkir kostir fyrir hendi, enda er til fjöldi frjósemislyfja á markaði auk aðferða í búfjárrækt þar sem notkun lyfja er ekki krafist. Þrátt fyrir þetta og neikvæða umsögn fagráðs um velferð dýra veitti MAST Ísteka hf. skilyrt starfsleyfi í vor.
Atvinnuvegaráðuneytið vísaði kærunni frá
Atvinnuvegaráðuneytið tók hins vegar ekki efnislega afstöðu til þeirra sjónarmiða sem fram komu í kærunni. Henni var vísað frá á þeim grundvelli að dýraverndarsamtökin væru ekki talin hafa nægilega beina og lögvarða hagsmuni af málinu til að teljast aðilar þess.
Þetta er ekki einsdæmi. Erindum dýraverndarsamtaka vegna ákvarðana og málsmeðferðar MAST er ítrekað vísað frá á þeim grundvelli að samtökin teljist ekki eiga aðild að málunum. Afleiðingin er sú að ákvarðanir sem varða velferð dýra geta farið hjá því að sæta efnislegri endurskoðun æðra stjórnvalds.
Rof í réttarvernd dýra
Dýr geta augljóslega ekki sjálf leitað réttar síns eða kært stjórnvaldsákvarðanir sem hafa áhrif á velferð þeirra. Þegar samtökum sem hafa það hlutverk að gæta hagsmuna dýra er jafnframt synjað um aðild að slíkum málum myndast augljóst rof í réttarvernd dýra.
Dýraverndarsamband Íslands og Samtök um dýravelferð á Íslandi kalla því eftir því að við heildarendurskoðun laga um velferð dýra, sem nú er til meðferðar hjá atvinnuvegaráðuneytinu, verði tryggt með skýrri lagaheimild að viðurkennd dýraverndarsamtök geti kært stjórnvaldsákvarðanir sem varða velferð dýra, að sambærilegum skilyrðum uppfylltum og gilda um umhverfisverndarsamtök.
Efla þarf réttarvernd dýra á Íslandi. Dýraverndarsamtök verða að geta leitað réttar fyrir hönd dýra innan stjórnsýslunnar.

