Dýraverndari ársins 2025
INGIVEIG GUNNARSDÓTTIR
Dýraverndari ársins 2025 er Ingiveig Gunnarsdóttir, stofnandi dýravelferðarsamtakanna Dýravaktin.
Ingiveig hefur á undanförnum árum unnið óeigingjarnt og mikilvægt starf í þágu andfugla. Jafnframt hefur hún stuðlað að aukinni vitund og samfélagslegri umræðu um málefni dýra í neyð á samfélagsmiðlum.
Ingiveig hefur verið vakin og sofin yfir velferð andfugla á höfuðborgarsvæðinu en samtökin leggja ríka áherslu á aðgerðir til að hjálpa dýrum í neyð. Fyrir tilstuðlan Dýravaktarinnar hefur andfuglum á höfuðborgarsvæðinu verið tryggð reglubundin fóðrun undanfarin ár sem er ómetanlegt fyrir fuglana sem reiða sig að miklu leyti á fóðurgjafir til að komast af yfir vetrarmánuðina.
Sjálfboðaliðar samtakanna hafa jafnframt aðstoðað fjölda andfugla sem hafa slasast eða flækst í rusli, annast þá eða komið til umönnunar hjá dýralæknum. Ingiveig hefur leitt það starf af miklum myndarskap.
Ingiveig hefur einnig beint athygli sveitarfélaga að málefnum andfugla með fjölmörgum fundum en það er á herðum sveitarfélaga að sinna dýrum í neyð sem ekki hefur alltaf verið sinnt sem skyldi. Þá hefur hún einnig vakið athygli almennings á stöðu andfugla með viðtölum í fjölmiðlum og verið driffjöður í baráttunni fyrir bættri velferð þeirra.
Ingiveig Gunnarsdóttir á lof skilið fyrir frumkvæði, hugrekki og þrautseigju í störfum sínum í þágu dýra.
Það er mikill heiður fyrir Dýraverndarsamband Íslands að veita Ingiveigu viðurkenninguna Dýraverndari ársins 2025.
Til baka

