Leyfi til blóðmerahalds verði fellt úr gildi
16. júlí 2026
SAMEIGINLEG YFIRLÝSING
Dýraverndarsamband Íslands og Samtök um dýravelferð á Íslandi ásamt Anima, Animals’ Angels Inc., Animal Justice, Animal Welfare Foundation, Dier&Recht, Ekō, Eurogroup for Animals, Italian Horse Protection og Tierschutzbund Zürich og Welfarm hafa sent kvörtun til atvinnuvegaráðuneytisins.
Þar er þess krafist að ákvörðun Matvælastofnunar (MAST) um veitingu leyfis til blóðmerahalds verði fellt úr gildi. Jafnframt er þess krafist að MAST taki umsóknina til meðferðar á ný í fullu samræmi við kröfur reglugerðar um vernd dýra sem eru notuð í vísindaskyni sem er Evróputilskipun og Íslandi ber að fylgja sem aðili að EES samningnum.
Leyfi fyrir blóðtöku úr allt að 4.900 hryssum
Leyfið heimilar blóðtöku úr allt að 4.900 fylfullum hryssum árlega í þeim tilgangi að framleiða PMSG/eCG-hormón til notkunar í dýrafrjósemislyfjum, aðallega fyrir gyltur í verksmiðjubúskap. Hormónið hefur neikvæð áhrif á velferð dýranna þar sem notkun þess getur leitt til stærri og veikbyggðari grísagota, sem eykur hættuna á grísadauða.
Blóðtakan gengur nærri velferð hryssanna
Blóðtaka í blóðmerahaldi fer langt umfram alþjóðleg viðmið og gengur nærri heilsu og velferð hryssanna. Einnig er meðferð hryssnanna við blóðtöku, sem eru að jafnaði lítið tamdar, með öllu óviðunandi. Ekki er unnt að taka blóð úr hálfvilltum hrossum án þess að valda þeim verulegri streitu og ótta eða án þess að beita þvingunum.
MAST gekk gegn áliti fagráðs
Fagráð um velferð dýra veitti leyfisumsókn fyrir blóðmerahaldi neikvæða umsögn í febrúar síðastliðnum. Þrátt fyrir það fór MAST gegn áliti ráðsins og veitti starfseminni skilyrt leyfi til tveggja ára í maí. Það vekur einnig furðu að leyfi hafi verið veitt á meðan yfirstandandi áhættumat Matvælaöryggisstofnunar Evrópu (EFSA) er varðar velferð blóðmera er enn ólokið.
Óásættanlegt að veita leyfi fyrir óþarfa notkun dýra
Reglugerð um vernd dýra sem eru notuð í vísindaskyni gerir skýra kröfu um að þegar það er mögulegt skuli nota aðrar aðferðir í stað lifandi dýra. Til eru staðgöngulyf sem skila sambærilegum árangri og PMSG hormónið við að samstilla gangmál búfjár. Einnig er unnt að auka frjósemi og samstilla gangmál búfjár án lyfjanotkunar með ráðstöfunum í búfjárrækt sem getur komið í stað hormónsins. Það er óásættanleg niðurstaða að MAST veiti leyfi fyrir notkun á dýrum til lyfjaframleiðslu þegar skýrt er að það sé ekki nauðsynlegt eða ómissandi eins og reglugerðin gerir kröfu um.
Þess krafist að leyfið verði fellt úr gildi
Samtökin krefjast þess að ákvörðun MAST um að veita leyfi til blóðtöku úr fylfullum hryssum, þvert á umsögn fagráðs um velferð dýra, verði felld úr gildi í heild sinni eða til vara að hún verði endurskoðuð í samræmi við kröfur reglugerðar nr. 460/2017 um vernd dýra sem eru notuð í vísindaskyni og laga nr. 55/2013 um velferð dýra.
Til baka

