Dýraverndarinn er kominn út!
16. júlí 2025
Í nýju ársriti Dýraverndarsambands Íslands er farið yfir viðburðaríkt starfsár félagsins og þau fjölbreyttu verkefni sem unnið hefur verið að í þágu velferðar dýra.
Blaðið er jafnframt skýrsla stjórnar DÍS fyrir starfsárið 2025–2026 og var kynnt á aðalfundi félagsins í maí síðastliðnum.
Heitið Dýraverndarinn er samofið sögu DÍS. Ingunn Einarsdóttir, ein af stofnendum DÍS, lagði til að félagið myndi gefa út blað og að hennar tillögu fékk blaðið heitið Dýraverndarinn. Fyrsta tölublaðið kom út í mars 1915. Blaðið var málgagn félagsins og tilgangur þess að fræða almenning um dýravelferð og auka samkennd með dýrum.
Fjallað um einn stofnanda DÍS, Ingunni Einarsdóttur og um vígslu upplýsingaskiltis við leiði hennar í Hólavallagarði þar sem forseti Íslands flutti ávarp.
Í blaðinu er farið yfir helstu áfanga í starfi Dýraverndarsambandsins og farið yfir það helsta sem gerst hefur á viðburðarríku ári.

