Yfirlýsing DÍS vegna minka sem var sleppt frá loðdýrabúi í Mosfellsdal

31. júlí 2026

Það er alvarlegt dýravelferðarmál að minkum hafi verið sleppt frá loðdýrabúi í Mosfellsdal. Minkar eru afkastamikil rándýr og getur sá mikli fjöldi dýra sem var sleppt valdið verulegum skaða á lífríki svæðisins, ekki síst fuglalífi. 

Þessi verknaður varðar einnig velferð minkanna sjálfra þar sem dýr sem hafa verið alin innandyra geta reynst bjargarlaus í náttúrunni.

Dýraverndarsamband Íslands tekur undir hvatningu Matvælastofnunar og hvetur dýraeigendur til að gæta öryggis þeirra dýra sem gæti stafað hætta af minknum. Jafnframt er fólk hvatt til að fara ekki á svæðið í þeim tilgangi að taka þátt í leit eða föngun minkanna. Sú vinna er alfarið á ábyrgð og á vegum fagaðila sveitarfélagsins.

Nauðsynlegt er að aðgerðir vegna minkanna fari fram á mannúðlegan hátt og að aflífun þeirra, þar sem hún reynist óhjákvæmileg, sé framkvæmd í samræmi við lög um velferð dýra.

Lögregla rannsakar nú málið og enn sem komið er hefur ekki verið staðfest hver stendur að baki verknaðinum eða í hvaða tilgangi hann var framinn.

Dýraverndarsambandið vill árétta að hafi verið um að ræða aðgerð í nafni dýravelferðar skaðar slíkt aðeins málstað dýra. Sambandið styður ekki slíka nálgun.

Til baka

Previous
Previous

Enginn markaður fyrir hvalkjöt undirstrikar tilgangsleysi veiðanna

Next
Next

Leyfi til blóðmerahalds verði fellt úr gildi