Yfirlýsing DÍS vegna hvalveiða
23. júní 2026
Fyrsta langreyðurin sem veidd er við Ísland í tvö ár var dregin upp í Hvalstöðina í Hvalfirði um klukkan fjögur í nótt þegar Hvalur 9 kom í nótt með tvær langreyðar að landi.
Dýraverndarsamband Íslands (DÍS) mótmælir harðlega þessum veiðum sem eru ómannúðlegar og með öllu tilgangslausar út frá viðskiptahagsmunum Hvals hf og aðaleiganda þess Kristjáns Loftssonar. Þrátt fyrir að engar hvalveiðar hafi verið stundaðar í tvö ár, og þær þar áður verið takmarkaðar, eru enn birgðir af hvalkjöti í frystigeymslum sem enginn markaður er fyrir.
Stóra spurningin er sú hvað raunverulega vakir fyrir Kristjáni Loftssyni úr því að hann tapar aðeins fjárhagslega á veiðunum? Er það að hindra lýðræðislega kjörin stjórnvöld í því að setja lög á hvalveiðar í haust og/eða að hafa áhrif á þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið seinnipartinn í ágúst í ljósi þess að Evrópusambandið bannar hvalveiðar? DÍS hvetur fjölmiðla til að leita svara við þessu.
Fagráð um velferð dýra komst að þeirri niðurstöðu þann 16. júní 2023 að veiðar á langreyðum, næst stærstu dýrum jarðar á eftir steypireyðum, stæðust vart lög um velferð dýra og að engin þekkt leið væri til að drepa þessi risavöxnu spendýr á mannúðlegan hátt. Frelsi Kristjáns Loftssonar til að halda úti þessu úrelta áhugamáli sínu var í framhaldinu, af Umboðsmanni Alþingis, metið þýðingarmeira en lög um velferð dýra. Við þetta verður ekki unað.
Sýnt hefur verið fram á, með eftirliti MAST árin 2022 og 2023, að hvalveiðar eru eitt augljósasta brot á lögum um dýravelferð sem hugsast getur. Það tók allt að tvær klukkustundir að deyða langreyði eftir að þremur sprengiskutlum, hver með 4 kg dýnamíthleðslu, hafði verið skotið í dýrið. Skyttur hittu dýrin illa. Í einhverjum tilfellum syntu helsærð dýr á brott og hurfu eftir að hafa verið skotin margsinnis og í öðrum tilvikum birtust kálfar þegar magi kvendýra var skorin upp á planinu í Hvalstöðinni.
Þessu verður ekki lýst öðruvísi en sem villimannslegum veiðum sem eiga sér enga stoð í nútímanum. Dýraverndarsamband Íslands hvetur íslensk stjórnvöld til að binda endi á þessar ónauðsynlegu og ómannúðlegu veiðar hið allra fyrsta.
Til baka

