Hvalveiðar verði stöðvaðar og leyfi Hvals hf afturkallað - Yfirlýsing DÍS
1. júlí 2026
Frá því að veiðar á langreyðum hófust að nýju í júní, eftir tveggja ára hlé, hafa í það minnsta tvö atvik komið upp sem gefa tilefni til þess að starfsemi Hvals hf í Hvalfirði verði stöðvuð og leyfi félagsins til veiða og vinnslu afturkallað.
Í ljós hefur komið að talsverð yfirborðsmengun stafar frá Hvalstöðinni í Hvalfirði vegna mjölvinnslu en forstjóri Hvals hf hefur ekki svarað erindi heilbrigðiseftirlits Vesturlands frá því 11. maí sl. um þessa mengun. Hvalur hf hefur reyndar haft í það minnsta tvö ár til að bæta úr þessu, eða frá að síðast voru veiddar langreyðar við Ísland, en ekkert brugðist við. Um er að ræða skýrt brot á starfsleyfi Hvals hf og sem varðað getur stöðvun starfseminnar eða afturköllun starfsleyfis.
Langreyður sem veidd var þann 22. júní sl. reyndist vera með fjögur skotsár samkvæmt skýrslu Matvælastofnunar, sem fer með eftirlit með veiðunum. Það tók 31 mínútu, frá því að fyrsti skutullinn hæfði dýrið, með 4 kg sprengihleðslu, og þar til það dó eftir að hafa verið skotið þrisvar sinnum til viðbótar. Hér er um að ræða skýrt brot á lögum um velferð dýra.
Sumarið 2023 átti sér stað mjög sambærilegt atvik þar sem það tók 30 mínútur að aflífa dýr og voru veiðar Hvals hf þá stöðvaðar tímabundið á meðan atvikið var rannsakað frekar og fyrirtækinu gefinn kostur á að bæta ráð sitt. Ekkert bendir til að Hvalur hf hafi neitt lært af því atviki eða öðrum skráðum atvikum þar sem jafnvel tók enn lengri tíma en hér um ræðir að aflífa dýrin.
Dýraverndarsamband Íslands hvetur stjórnvöld eindregið til að stöðva þegar í stað þessar langreyðarveiðar þar sem Hvalur hf hefur ítrekað á undanförnum árum, nú síðast þann 22. júní sl., orðið uppvíst að brotum á lögum um velferð dýra nr. 55/2013 sem og brotum á reglugerðum sem um starfsemina gilda. Dýraverndarsambandið minnir á að allir eru jafnir gagnvart lögum.

