Hvatning til kattaeigenda á varptíma fugla

11. júní 2026

Kettir eru dásamlegir félagar en þeir eru rándýr og því hvetur Dýraverndarsamband Íslands kattaeigendur til að sýna ábyrgð og gera allt sem í þeirra valdi stendur til að lágmarka fugladráp katta sinna. Frá maí til ágúst á ári hverju eru margir fuglar að verpa og ala upp unga og því sérstaklega berskjaldaðir. 

Það eru til einföld ráð sem kattaeigendur geta notað til að draga úr þeim skaða sem kettir geta mögulega valdið og verndað þannig fuglalíf í nærumhverfi sínu.

Stýra útivistartíma kattarins

Eigendur katta ættu að stýra útivistartíma kattarins á þessum árstíma. Kettir sjá verr í mikilli birtu og veiða því minna yfir daginn. Því ætti helst að halda köttum inni frá klukkan 17 síðdegis til klukkan 9 næsta morgun. Þeim köttum sem eru miklar veiðiklær væri best að halda inni á varptíma fugla þar sem þeir fara jafnvel upp í hreiður til að drepa unga og geta veitt tugi fugla yfir sumartímann.

Litríkir kragar og bjöllur

Nota hjálpartæki til að draga úr veiðunum. Hægt er að draga úr veiðigetu kattarins með því að hengja á hann bjöllu, jafnvel fleiri en eina en þó sérstaklega með því að setja á köttinn litríkan hálskraga. Fuglar koma fyrr auga á ketti sem eru með slíkan kraga um hálsinn og geta forðað sér. Kragana er til dæmis hægt að fá hjá Fuglavernd, í Kattholti, í gæludýraverslunum og hjá dýralæknum. Rannsóknir hafa sýnt að slík hjálpartæki gera gagn. Kettir sem veiða mikið ættu að vera í svokallaðri kattasvuntu en þær draga úr veiðigetu þeirra. 

Saddir og rólegir kettir

Það getur reynst hjálplegt að kötturinn fái meiri örvun á meðan viðkvæmur varptími fugla stendur yfir til dæmis með því að leika við hann heima fyrir og einnig að hann fái góða matarskammta. Saddur og rólegur köttur sækist síður í að veiða þó það sé ekki algilt.  Einnig er mælt með að láta gelda köttinn. Kettir sem eru geldir fara styttri ferðir að heiman og hafa alla jafna minni áhuga á veiðum. 

Með samstilltu átaki geta ábyrgir kattaeigendur stuðlað að því að fuglar fái sem best tækifæri til að koma upp ungum sínum. 

Á vef Fuglaverndar má nálgast ítarefni:
Heimiliskötturinn, besti vinur mannsins en ógn við fuglalíf?

Til baka

Next
Next

Ályktun aðalfundar DÍS vegna fyrirhugaðra hvalveiða í sumar