Áhyggjur af framkvæmd aðgerða til fækkunar bjargdúfna í Vestmannaeyjum
24. september 2026
Dýraverndarsamband Íslands (DÍS) lýsir yfir áhyggjum vegna framkvæmdar Vestmannaeyjabæjar til fækkunar bjargdúfna í Vestmannaeyjum. Bjargdúfur eru friðaðar og fékk Vestmannaeyjabær leyfi frá umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu til að fækka þeim í eyjunni. Náttúruverndarstofnun veitti Vestmannaeyjabæ leiðbeiningar um framkvæmd aðgerðanna.
DÍS hefur sent umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu og Náttúruverndarstofnun erindi vegna þess sem komið hefur fram um framkvæmdina.
Særðir fuglar og fuglahræ hafa fundist
Fjallað hefur verið um í fjölmiðlum og á samfélagsmiðlum að bjargdúfur hafi fundist særðar í kjölfar aðgerðanna. Þá hafi dúfnahræ verið skilin eftir á víðavangi, auk hræja annarra fuglategunda, þar á meðal lundapysja og fýlsunga. Þá hafi skothylki einnig fundist skilin eftir á vettvangi.
Þessar upplýsingar vekja verulegar áhyggjur af því hvernig staðið hefur verið að aðgerðunum.
Óskað eftir að málið verði tekið til sérstakrar skoðunar
Dýraverndarsamband Íslands hefur óskað eftir því að Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið og Náttúruverndarstofnun taki málið til sérstakrar skoðunar, meðal annars með hliðsjón af því hvort fullnægjandi eftirlit hafi verið haft með aðgerðunum og hvort þær hafi verið í samræmi við skilyrði leyfisins og ákvæði gildandi laga.
Jafnframt er óskað eftir því að aðgerðirnar verði stöðvaðar þar til niðurstaða liggur fyrir um hvort framkvæmd þeirra hafi verið í samræmi við skilyrði leyfisins.
Hér má lesa erindið í heild sinni
Til baka

