DÍS hvetur stjórnvöld til að gera verulegar breytingar á frumvarpi um lagareldi
Mynd: iStock
8 maí 2025
Dýraverndarsamband Íslands hvetur stjórnvöld til að gera verulegar og nauðsynlegar breytingar á frumvarpi til laga um lagareldi þar sem frumvarpið tryggir ekki dýravelferð með fullnægjandi hætti.
Í umsögn DÍS um frumvarpið er bent á að fyrir liggi að verulegur fjöldi eldisfisks deyi árlega í opnu sjókvíaeldi vegna sjúkdóma, streitu og annarra þátta. DÍS gagnrýnir að í frumvarpinu sé gert ráð fyrir að rekstraraðilar greiði gjald vegna affalla án þess að skýr mörk séu sett um hvenær umfang affalla eigi að leiða til rekstrarstöðvunar. Af frumvarpinu verður því ráðið að afföllin séu að hluta lögð til grundvallar rekstrarforsendum sem er óviðunandi og að mati DÍS í andstöðu við markmið laga um velferð dýra. Slík nálgun kann jafnframt að skapa varhugavert fordæmi til framtíðar.
Þá eru velferðarsjónarmið ekki skilgreind sem bindandi forsenda starfseminnar heldur sem atriði sem taka beri tillit til. Slík nálgun er ófullnægjandi hvað varðar velferð eldisfisks og veitir fyrirtækjum í þessari starfsemi ekki nægilegt aðhald.
Kerfisbundin þjáning dýra
Rannsóknir sýna að fiskar finna fyrir sársauka og streitu og því verði að gera ríkar kröfur um velferð þeirra. Í markmiðsákvæði laga um velferð dýra sem taka til hryggdýra, þar með talið fiska segir að dýr skuli vera laus við vanlíðan, hungur og þorsta, ótta, sársauka, meiðsli og sjúkdóma, í ljósi þess að dýr eru skyni gæddar verur, og að þau geti sýnt sitt eðlilega atferli eins og frekast er unnt.
Ljóst er að opið sjókvíaeldi felur í sér kerfisbundna þjáningu dýra á stórum skala og aðbúnaður laxanna í andstöðu við lög um velferð dýra. Um er að ræða þauleldi við mikinn þéttleika þar sem fiskar búa við aðstæður sem valda þeim streitu, líkamlegum áverkum og sjúkdómum. Í reynd er gert ráð fyrir að dýrin búi við slíkar aðstæður og töluverð afföll talið óhjákvæmilegur hluti starfseminnar. Slíkt á ekki að vera forsenda í starfsemi með dýr.
Umsögn DÍS um málið og fundur með atvinnuveganefnd
Fjallað var um frumvarpið um lagareldi á fundi atvinnuveganefndar Alþingis mánudaginn 4. maí síðastliðinn. Linda Karen Gunnarsdóttir, formaður DÍS var á fundinum og kom þar á framfæri athugasemdum DÍS og hvatti stjórnvöld til að gera breytingar á frumvarpinu.
Á fundinum voru auk Lindu Karenar, formanns DÍS þau Jón Kaldal, talsmaður Íslenska náttúruverndarsjóðsins, Katrín Oddsdóttir lögmaður og talsmaður VÁ, Félags um vernd fjarðar, Elías Pétur Viðfjörð Þórarinsson, verkefnastjóri Verndarsjóðs Villtra Laxastofna (NASF á Íslandi) og Elvar Örn Friðriksson framkvæmdastjóri NASF.
Hér má lesa umsögnina sem Dýraverndarsamband Íslands sendi stjórnvöldum um miðjan apríl síðastliðinn.

