Framboð til stjórnar DÍS og lagabreytingatillögur á aðalfundi 2026

14. maí 2026

Nú styttist í aðalfund Dýraverndarsambands Íslands sem haldinn verður miðvikudaginn 20. maí kl. 17-19 í húsnæði Eignaumsjónar Suðurlandsbraut 30, 108 Reykjavík. 

Gengið er inn fyrir aftan bygginguna, af 2. hæð í bakhúsinu og inngangur er beint af efra bílastæðinu. Húsið opnar 16:45.

Eftirfarandi eru upplýsingar um þau framboð til stjórnar og þær lagabreytingartillögur sem bárust.

​Eftirfarandi framboð bárust til stjórnarsetu í DÍS 

​Sitjandi gjaldkeri María Lilja Tryggvadóttir gefur kost á sér til áframhaldandi stjórnarsetu í sæti gjaldkera til tveggja ára.


Framboð í sæti ritara til tveggja ára
Adelina Antal

Ég sæki hér með um sæti ritara í stjórn Dýraverndarsambands Íslands. 

Frá því ég man eftir mér hefur mér fundist skrítið hvernig við komum fram við dýr. Nú er ég 37 á árinu og er engu nær að skilja það. Ég vona að ég geti lagt þessu frábæru samtökum lið á einhvern hátt og hlakka til að taka þátt í starfinu. 

Síðustu 10 ár hef ég unnið í sjónvarpsgeiranum, fyrst á Stöð2 og svo núna á RÚV, við framleiðslu á alls kyns sjónvarpsefni. Ég með diplómu í ljósmyndun og kvikmyndagerð, BA í listfræði og hálfa MA gráðu í menningarmiðlun sem ég stefni á að klára einn daginn. Ég hef áður setið í stjórn Samtaka grænkera á Íslandi í eitt ár en hætti vegna anna.

Nú er ég spennt fyrir því að kynnast frekar starfi Dýraverndarsambands Íslands og því frábæra fólki sem vinnur svo þarfa vinnu þar.


Framboð í sæti meðstjórnanda til tveggja ára
Óskar Halldór Valtýsson

Ég heiti Óskar Halldór Valtýsson og býð mig fram í embætti meðstjórnanda í stjórn Dýraverndarsambands Íslands.

 Ég hef fylgst náið með dýravelferðarmálum undanfarna tvo áratugi og tel að enn sé margt óunnið, þrátt fyrir að mál hafi þróast í rétta átt á síðustu árum. Hef brennandi áhuga á að leggja mitt af mörkum til þess góða starfs sem unnið er innan Dýraverndarsambands Íslands.

Ég hef starfað mestallan minn starfsferil innan fjarskipta- og raforkugeirans, lengst af sem fjarskiptastjóri Landsvirkjunar. Er stofnandi og meðeigandi nýsköpunarfyrirtækisins Laka Power og starfa þar sem tækniþróunarstjóri. Ég er skráður fyrir nokkrum alþjóðlegum einkaleyfum á sviði rafeinda- og orkunámstækni.

Ég er giftur, á fimm börn og fjölda barnabarna. Á heimilinu eru nú fjórir hundar, en þeir hafa mest verið sex á sama tíma.


Lagabreytingatillögur

Þann 12. maí rann einnig út frestur til að senda inn tillögur að breytingum á lögum félagsins. Tvær tillögur bárust frá stjórn Dýraverndarsambandsins.

Lagabreytingartillaga 1: Skuldbindingar DÍS

Í dag er 3. gr. um skuldbindingar sambandsins eftirfarandi:

Sambandið tekur að sér eftirtaldar skuldbindingar:

a) að tilnefna einn fulltrúa til þriggja ára í fagráð um velferð dýra samkvæmt lögum númer 55/2013 um velferð dýra.

b) að tilnefna allt að þrjá fulltrúa í Norræna Dýravelferðarráðið skv. samþykktum þess.

c) að tilnefna tvo fulltrúa í stjórn Sauðfjárverndarinnar kt. 550269-4659.

d) að tilnefna þrjá fulltrúa í stjórn Minningarsjóðs Peders J. Steffensen kt. 680602-3950.

e) að tilnefna þrjá fulltrúa í stjórn Tækjakaupasjóðsins „Dýrin mín stór og smá“ kt. 691298-4349.

f) að annast vörslu Sólskríkjusjóðsins kt. 600397-2149.

Sambandið skal starfrækja skrifstofuaðstöðu eftir því sem aðstæður leyfa og henta starfseminni á hverjum tíma.


Lagt er til að g-lið verði bætt við sem orðist svo:

g) að annast reglubundna umhirðu og viðhald á leiði Ingunnar Einarsdóttur stofnanda sambandsins.


Lagabreytingartillaga 2: Ráðning starfsfólks

Í dag er 6. gr. um ráðingu starfsfólks eftirfarandi:

Stjórn getur ráðið framkvæmdastjóra og/eða starfsmann til að sjá um daglega umsýslu sambandsins. Framkvæmdastjóri og/eða starfsmaður situr stjórnarfundi sambandsins eftir því sem við á.

Lagt er til að hún orðist svo:

Stjórn getur ráðið framkvæmdastjóra eða starfsmann til að annast daglega umsýslu sambandsins. Framkvæmdastjóri og/eða starfsmaður situr stjórnarfundi eftir ákvörðun stjórnar og hefur þar málfrelsi og tillögurétt en ekki atkvæðisrétt.

Stjórnarmenn geti verið starfsmenn sambandsins í hlutastarfi og þá aðeins ef stjórn er einróma samþykk því.


Til baka

Next
Next

DÍS hvetur stjórnvöld til að gera verulegar breytingar á frumvarpi um lagareldi