Aðalfundur DÍS verður þann 20. maí

5. maí 2026

Aðalfundur Dýraverndarsambands Íslands (DÍS) verður haldinn miðvikudaginn 20. maí kl 17:00-19:00 í húsnæði Eignaumsjónar Suðurlandsbraut 30, 108 Reykjavík. 

Gengið er inn fyrir aftan bygginguna, af 2. hæð í bakhúsinu og inngangur er beint af efra bílastæðinu. Húsið opnar 16:45.

Farið verður yfir verkefni starfsársins og komandi verkefni, auk þess sem veitt verður viðurkenning DÍS – Dýraverndari ársins!

Dagskrá aðalfundar DÍS

  1. Kosning fundarstjóra og fundarritara

  2. Ársskýrsla stjórnar

  3. Ársreikningar lagðir fram til samþykktar

  4. Dýraverndari ársins 2025

  5. Kjör ritara, gjaldkera og meðstjórnanda

  6. Kjör skoðunarmanns reikninga 

  7. Lagabreytingatillögur

  8. Félagsgjöld og nýir félagar til samþykktar

  9. Önnur mál

  10. Aðalfundi slitið

Framboð til stjórnar og lagabreytingatillögur

Í stjórn DÍS sitja sex manns. Á aðalfundi 2026 verður kosið um ritara, gjaldkera og meðstjórnanda, til tveggja ára. 

Samkvæmt lögum félagsins geta fullgildir félagar gefið kost á sér til stjórnar, verið orðnir félagar í DÍS fyrir síðasta aðalfund árið 2025.

Rétt til setu á aðalfundi eiga allir félagsmenn og mánaðarlegir styrktaraðilar. Atkvæðisrétt eiga allir fullgildir félagsmenn sem greitt hafa félagsgjöld yfirstandandi árs eða að lágmarki styrkt félagið um sem nemur sömu upphæð.

Framboð til stjórnar og lagabreytingartillögur þurfa að berast í síðasta lagi þriðjudaginn 12. maí á netfangið dyravernd@dyravernd.isog verður kynnt á heimasíðu DÍS fimmtudaginn 14. maí.

Framboðstilkynningu þarf að fylgja kynningartexti, 100-200 orð ásamt upplýsingum um til hvaða stjórnarsætis er boðið fram.

Við hvetjum félaga til að mæta og hafa áhrif á störf DÍS.

Stjórn Dýraverndarsambands Íslands

Til baka

Next
Next

Hvalirnir og lögin - málþing