Skorað á stjórnvöld að draga úr hættu á frostlagareitrun - ályktun aðalfundar DÍS
28. maí 2026
Dýraverndarsamband Íslands skorar á stjórnvöld að vinna að því að draga úr innflutningi og sölu á frostlegi sem inniheldur etýlenglýkól og að settar verði skýrari reglur um öryggi slíkra vara. Jafnframt er skorað á fyrirtæki sem selja frostlög að bjóða eingöngu uppá frostlög sem inniheldur beiskjuefni eða eru án etýlenglýkóls þar sem því verður við komið.
Reglulega er eitrað fyrir dýrum víða um land með mat sem hefur verið lagður í frostlög og skilinn eftir úti í náttúrunni. Um er að ræða alvarlegt dýravelferðarmál og brot gegn lögum um velferð dýra. Nýverið hafa gæludýr dáið vegna frostlagareitrunar, meðal annars í Kjós og Sandgerði.
Frostlögur sem inniheldur etýlenglýkól getur haft sætt bragð sem laðar dýr að sér án þess að þau geri sér grein fyrir hættunni. Slík eitrun veldur alvarlegum nýrnaskaða og leiðir til kvalarfulls dauðdaga.
Í mörgum Evrópulöndum hafa stjórnvöld og framleiðendur gripið til ráðstafana til að draga úr hættu á frostlagarseitrun, meðal annars með notkun beiskjuefna sem gera frostlöginn slæman á bragðið og með aukinni notkun öruggari valkosta á borð við frostlög sem inniheldur própýlenglýkól.
Framangreind ályktun var samþykkt á aðalfundi Dýraverndarsambands Íslands 20. maí 2026.

