Áskorun til stjórnvalda vegna blóðmerahalds - ályktun aðalfundar DÍS 2026

27. maí 2026

Matvælastofnun hefur nú ákveðið að veita lyfja- og líftæknifyrirtækinu Ísteka ehf. skilyrt starfsleyfi fyrir blóðtöku úr fylfullum hryssum til næstu tveggja ára.

Ákvörðun stofnunarinnar vekur alvarlegar efasemdir þar sem starfsemin stenst ekki ákvæði Evróputilskipunar um vernd dýra sem eru notuð í vísindaskyni sem byggir á því að takmarka skuli notkun dýra í slíkum tilgangi.

Samkvæmt tilskipuninni skal ávallt nota aðrar aðferðir í stað lifandi dýra þegar það er mögulegt. Jafnframt þarf að sýna fram á nauðsyn og skýran ávinning af notkun dýranna. Fyrir liggur að til er fjöldi kemískra frjósemislyfja og aðferðir í búfjárrækt sem geta þjónað sama tilgangi og PMSG-hormónið sem unnið er úr blóði hryssanna.

Þá er ávinningur starfseminnar fyrst og fremst fjárhagslegur en felur hvorki í sér augljósan samfélagslegan ávinning né bætta velferð dýra.

Fagráð um velferð dýra veitti umsókninni neikvæða umsögn. Það vekur því athygli að Matvælastofnun skuli ganga gegn áliti ráðsins og veita leyfið þrátt fyrir að starfsemin standist ekki ákvæði reglugerðarinnar.

Dýraverndarsamband Íslands skorar á stjórnvöld að afturkalla leyfisveitinguna og tryggja að framkvæmd leyfisveitinga er varða notkun á dýrum í vísindaskyni sé í samræmi við skuldbindingar Íslands samkvæmt Evróputilskipun 2010/63/ESB.

Leyfisveitingin setur varhugavert fordæmi og gengur gegn markmiðum um aukna vernd dýra.

Framangreind ályktun var samþykkt á aðalfundi Dýraverndarsambands Íslands, 20. maí 2026.

Til baka

Next
Next

Dýraverndari ársins 2025