Ályktun aðalfundar DÍS vegna fyrirhugaðra hvalveiða í sumar
1. júní 2026
Dýraverndarsamband Íslands hvetur stjórnvöld til að gera allt það sem í þeirra valdi stendur til að koma í veg fyrir að hvalveiðar hefjist að nýju við Ísland í sumar.
Hvalur hf hefur lýst því yfir að fyrirtækið hyggist stunda veiðar á langreyðum í sumar. Þá hefur Nora Seafood á Ísafirði uppi áform um að hefja hrefnuveiðar í Ísafjarðardjúpi en slíkar veiðar hafa ekki verið stundaðar við landið í níu ár.
Dýraverndarsamband Íslands mótmælir harðlega þessum áformum en DÍS telur að hvalveiðar standist ekki gildandi lög um dýravelferð. Veiðiaðferðinar eru einstaklega harðneskjulegar og ómannúðlegar og það er ekki með nokkrum gildum rökum hægt að halda því fram að veiðar á þessum risavöxnu villtu spendýrum séu nauðsynlegar.
DÍS hvetur ennfremur stjórnvöld til að láta verða af því á fyrstu dögum haustþings að afnema núgildandi lög um hvalveiðar og/eða setja ný lög sem komi alfarið í veg fyrir slíkar veiðar í framtíðinni enda hefur Atvinnuvegaráðherra lýst því yfir að það sé hennar vilji.
Þá vill DÍS freista þess að höfða til samvisku forráðafólks Hvals hf og NORA Seafood og hvetja þau til að endurskoða nú þessar veiðar sem ættu að heyra fortíðinni til.
Framangreind ályktun var samþykkt á aðalfundi Dýraverndarsambands Íslands 20. maí 2026.
Til baka

