Margrét Marteinsdóttir ráðin fulltrúi DÍS

5. febrúar 2026

Margrét Marteinsdóttir hefur verið ráðin sem fulltrúi Dýraverndarsambands Íslands (DÍS). Hún hefur þegar hafið störf.

Margrét hefur víðtæka reynslu af fjölmiðlum, starfaði á RÚV í 16 ár, sem varafréttastjóri sjónvarps- og útvarps og sem dagskrárstjóri Rásar 1 og Rásar 2. Hún var um tíma yfirmaður íþróttadeildar RÚV og stýrði dægurmáladeild fréttastofunnar þar sem hún hafði yfirumsjón með fimm útvarpsþáttum: Hádegisútvarpinu, Morgun- og Síðdegisútvarpinu, Speglinum og Vikulokunum.

Undanfarin ár hefur Margrét starfað sem rannsóknarblaðamaður á Stundinni og Heimildinni og hefur þar m.a. fjallað um dýravelferðar- og umhverfismál. Hún hlaut blaðamannaverðlaun árið 2019 ásamt þremur blaðamönnum fyrir umfjöllun ársins um loftslagsbreytingar og árið 2023 fyrir viðtal ársins við Gyrði Elíasson skáld.

Árið 2014 skrifaði Margrét bókina Vakandi veröld – ástaróður sem er handbók með leiðbeiningum fyrir fólk um hvernig er hægt að lifa í sátt við náttúruna í hringiðu neyslusamfélagsins.  

,,Það er okkur mikill styrkur að fá Margréti til liðs við félagið og hlökkum við til samstarfsins. Dýraverndarsambandið hefur verið í miklum vexti undanfarin ár og ég er sannfærð um að framlag hennar muni efla félagið enn frekar í baráttunni fyrir velferð dýra í landinu.‘‘ segir Linda Karen Gunnarsdóttir, formaður Dýraverndarsambands Íslands.

Síðustu mánuði hefur fjöldi fólks bæst í hóp Dýraverndara sem styðja DÍS með reglulegu framlagi. Sá stuðningur er ómetanlegur og hefur gert DÍS mögulegt að ráða starfsmann til efla sambandið í baráttunni fyrir bættri velferð dýra.

Hægt er að gerast Dýraverndari á www.styrkja.is/dyravernd


Til baka

Next
Next

Meirihluti vill banna blóðmerahald