Bréf til framkvæmdastjórnar ESB: Bannið PMSG til að stöðva þjáningar blóðmera
12. febrúar 2026
Dýraverndarsamband Íslands hefur ásamt fimmtán alþjóðlegum dýraverndarsamtökum sent framkvæmdastjórn Evrópusambandsins bréf þar sem þess er krafist að hormónaefnið PMSG verði bannað í Evrópu. Efnið sem unnið er úr blóði fylfullra hryssna er notað sem frjósemislyf og aðallega gefið svínum í þauleldi.
Í bréfinu er vakin athygli á nýlegri rannsókn dýraverndarsamtakanna Animal Welfare Foundation (AWF) og Tierschutzbund Zürich (TSB) á blóðmerabúum í Argentínu og Úrúgvæ en þetta eru sömu samtök og gerðu rannsókn á blóðmerabúum á Íslandi.
Orðin tóm
Úttekt þeirra á búunum í Suður-Ameríku sýnir að aðbúnaður dýranna er skelfilegur og hefur síst skánað frá því að sömu samtök afhjúpuðu starfsemina fyrir tíu árum. Uppljóstrunin vakti heimsathygli á þeim tíma og í kjölfarið lofuðu yfirvöld í löndunum sem og fyrirtækin sem ráku blóðmerabúin bót og betrun.
Nú hefur komið í ljós að loforðin voru orðin tóm.
Ný rannsókn AWF og TSB sem stóð yfir á árunum 2023 til 2025 leiðir meðal annars í ljós að starfsmenn búanna í Argentínu og Úrúgvæ beita hryssurnar ofbeldi. Fylfullar hryssurnar eru neyddar inn í þröngar stíur þar sem þær eru bundnar niður og tekið úr þeim blóð. Þær streitast á móti og sparka í básana sem oft leiðir til þess að þær meiðast. Myndband frá búunum fylgir skýrslunni en einnig er hægt að horfa á það á Youtube.
Í bréfinu til framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins sem DÍS, Eurogroup for Animals og fleiri dýraverndarsamtök skrifa undir er farið í stuttu máli yfir helstu niðurstöður rannsóknar AWF og TSB á blóðmerabúunum í Suður-Ameríku.
Nýttu glufur í regluverki ESB
Í bréfinu er greint frá því að rannsókn AWF og TSB hafi leitt í ljós að argentínska fyrirtækið Syntex og dótturfélag þess í Úrúgvæ sem reka blóðmerabúin hafi fundið glufu í regluverki ESB eftir að hafa árið 2018 glatað öllum evrópsku viðskiptavinunum sem keypt höfðu af þeim PMSG. Syntex setti árið 2020 á laggirnar fyrirtæki sem er með höfuðstöðvar í Írlandi og getur nú dreift hormónaefninu til annarra Evrópulanda.
Dýraverndunarsamtökin segja í bréfinu að eina leiðin til koma í veg fyrir að fyrirtæki nýti glufur í reglunum og haldi þar með áfram að níðast á dýrum sé að leggja blátt bann við notkun á PMSG í Evrópu.
Hér má lesa bréf dýraverndarsamtakanna til framkvæmdastjórnar ESB.

