Hvalirnir og lögin - málþing

8.apríl 2025

Dýraverndarsamband Íslands og Náttúruverndarsamtök Íslands í samstarfi við Sjálfbærni- og loftslagsréttarstofnun Háskólans í Reykjavík efna til málþings í Norræna húsinu fimmtudaginn 16. apríl milli klukkan 17 og 19.

Er Ísland að virða alþjóðalög?

Á málþinginu verður fjallað um lagalegar skuldbindingar Íslands er varða hvalveiðar. Leitað verður svara við því hvort Ísland sé að virða alþjóðalög, rætt um CITES samninginn um bann við alþjóðaverslun með dýr og plöntur í útrýmingarhættu og samþykktir Alþjóðahvalveiðiráðsins.

Fyrirlesarar eru Chris Wold, prófessor við Lewis & Clark Law School í Portland, Snjólaug Árnadóttir, dósent í þjóðrétti og forstöðumaður Sjálfbærni- og loftslagsréttarstofnunar HR og Flóki Ásgeirsson, lögmaður.

Fundarstjóri er Sigursteinn Másson, rithöfundur og fjölmiðlamaður.

Dagskrá málþingsins 

17:00 Málþing opnað

17:05 Iceland’s Whaling in the International Legal Order: Law and Leverage

- Chris Wold, prófessor við Lewis & Clark Law School í Portland í Bandaríkjunum

17:30 Má íslenska ríkið heimila hvalveiðar í atvinnuskyni?

- Snjólaug Árnadóttir, dósent í þjóðrétti og forstöðumaður Sjálfbærni- og loftslagsréttarstofnunar HR

17:50 Tónlistarkonan Ólöf Arnalds leikur fyrir gesti

18:00 Léttar veitingar og spjall

18:15 Lagaumgjörð hvalveiða

- Flóki Ásgeirsson, lögmaður

18:35 Pallborðsumræður

19:00 Málþingi slitið 

Öll velkomin meðan húsrúm leyfir.  

Hér má skrá sig á viðburðinn á Facebook.


Til baka

Next
Next

Yfirlýsing frá DÍS: Skorað á stjórnvöld að banna loðdýrahald