Yfirlýsing frá DÍS: Skorað á stjórnvöld að banna loðdýrahald

Ljósmyndari: Kristo Muurima

19.mars 2026

Dýraverndarsamband Íslands hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna aðbúnaðar dýra í loðdýraeldi. Þar er kallað eftir því að stjórnvöld á Íslandi fylgi fordæmi þeirra 24 landa Evrópu sem bannað hafa loðdýrahald vegna dýravelferðarsjónarmiða, nú síðast Pólland sem hefur verið leiðandi í framleiðslu loðdýraskinna í Evrópu. 


Skýr skilaboð

Í yfirlýsingu DÍS segir að Ísland ætti ekki að vera undanskilið þessari þróun heldur taka af skarið og banna loðdýraeldi með skýrum hætti. Slíkt bann myndi senda skýr skilaboð um að velferð dýra sé sett í forgang og að samfélagið sætti sig ekki við atvinnugreinar sem byggja á þjáningu og vanvirðingu gagnvart dýrum.

Ljóst er að aðbúnaður dýra í loðdýraeldi samræmist ekki lögum um velferð dýra sem kveða á um að dýr séu laus við þjáningu, sársauka og meiðsli og að þau geti sýnt sitt náttúrulegt atferli eins og frekast er unnt.

Grimmileg aflífunaraðferð

Minkar eru haldnir í litlum vírbúrum þar sem þeir upplifa mikla streitu sem getur leitt til hegðunar er veldur sjálfsskaða. Dýrin eru jafnframt aflífuð með kolmonoxíð gasi sem er grimmilegt því það getur tekið nokkrar mínútur fyrir dýrin að deyja með slíkri aflífunaraðferð. Við aflífun upplifa þessi dýr dauðastríð sem er andstætt lögum. Um er að ræða gróft dýraníð.

Til baka

Next
Next

Þingmenn óska eftir svörum varðandi eftirlit með dýravelferð