Dýraverndarinn – ársrit Dýraverndarsambands Íslands 2024-2025
23. maí 2025
Á aðalfundi Dýraverndarsambands Íslands var venju samkvæmt kynnt skýrsla stjórnar og hefur skýrslan verið gefin út sem rafrænt rit undanfarin tvö ár. Stjórn hefur ákveðið að endurvekja gamalt og gott nafn og mun ársrit DÍS eftirleiðis bera heitið Dýraverndarinn - ársrit Dýraverndarsambands Íslands.
Heitið Dýraverndarinn er samofið sögu DÍS. Ingunn Einarsdóttir, ein af stofnendum DÍS, lagði til að félagið myndi gefa út blað og að hennar tillögu fékk blaðið heitið Dýraverndarinn. Fyrsta tölublaðið kom út í mars 1915. Blaðið var málgagn félagsins og tilgangur þess að fræða almenning um dýravelferð og auka samkennd með dýrum. Dýraverndarinn kom óslitið út allt til ársins 1983 en þá varð hlé, en blaðið var síðan gefið út aftur á árunum 2013 til 2015. Þar sem DÍS er að eflast mjög í sínu hlutverki sem málsvari dýra fannst stjórn viðeigandi að endurvekja þetta sögulega nafn með þessum hætti og vinna nánar að útgáfu blaðsins í framtíðinni.
Í Dýraverndaranum 2024-2025 er farið yfir það helsta sem gerst hefur á viðburðarríku ári. Hæst ber sennilega 111 ára afmælishátíðina sem haldin var í Salnum í Kópavogi í mars, en óvæntar haustkosningar settu mark sitt á starfsárið. Stjórn ákvað fjögur áherslumál í upphafi starfsárs. Áfram yrði unnið að því að eftirlit með velferð dýra verði bætt hér á landi, barist yrði gegn hvalveiðum og blóðmerahaldi og unnið að málefnum refa og sela. Í blaðinu er farið yfir helstu áfanga í þeirri vinnu.
Hægt er að sækja Dýraverndarann - ársrit Dýraverndarsambands Íslands 2024-25 sem PDF eða lesa blaðið hér að neðan.