Ill meðferð á hryssum í blóðmerahaldi kærð til lögreglu

28. maí 2025

Dýraverndarsamband Íslands (DÍS) ásamt þýsk-svissnesku dýraverndarsamtökunum Animal Welfare Foundation (AWF) og Tierschutzbund Zürich (TSB) hafa kært til lögreglu þau brot á lögum um velferð dýra sem sjást á upptökum sem náðust af blóðmerahaldi í september 2024. Upptökurnar sýna hvernig hryssur eru slegnar og sparkað í þær, þær bundar upp í ónáttúrulega og þvingaða stöðu sem getur valdið áverkum og ítrekað er blóðtöku ekki hætt þó að hryssur séu í miklu uppnámi. Dýralæknar sjást reyna í langan tíma að stinga eftir blóði, sem veldur hryssum sársauka og ótta.

Samtökin telja upptökurnar sýna alvarleg og kerfisbundin brot gegn velferð hryssa, sem mikilvægt er að bregðast við í tæka tíð áður en næsta blóðtökutímabil hefst.

Þessum nýjustu upptökum af blóðmerahaldi á Íslandi var deilt með Matvælastofnun í nóvember og þess óskað að hún rannsakaði hvort um væri að ræða brot á lögum um velferð dýra. Það var ekki fyrr en eftir að fjölmiðlar fjölluðu um upptökurnar að stofnunin brást við og tilkynnti að rannsókninni væri lokið. Var það niðurstaða Matvælastofnunar að vísa málinu ekki áfram til lögreglu, þrátt fyrir að stofnunin taldi myndböndin sýna „endurtekna óásættanlega meðferð á hryssum sem var metið sem alvarlegt frávik“. Telja samtökin þessa afgreiðslu vera óásættanlega. Rétt er að minna á að umboðsmaður Alþingis hefur hafið frumkvæðisrannsókn á afgreiðslu Matvælastofnunar á málinu.

Ef annað blóðtökutímabil fær að hefjast eru yfirvofandi frekari brot gegn lögum um velferð dýra. Telja samtökin því þann eina kost færan að kæra málið beint og krefjast þess að lögreglan rannsaki málið með sjálfstæðum hætti. Mikilvægt er að niðurstaða liggi fyrir sem fyrst í ljósi þess að næsta blóðtökutímabil hefst að óbreyttu síðla sumars.

Til baka

Previous
Previous

Ábyrgt kattahald - hvatning til kattaeigenda á varptíma fugla

Next
Next

Dýraverndarinn – ársrit Dýraverndarsambands Íslands 2024-2025