Opið bréf til íslenskra stjórnvalda vegna blóðmerahalds

26. febrúar 2026

Eurogroup for Animals, ásamt Dýraverndarsambandi Íslands og þýsk- svissnesku dýraverndarsamtökunum AWF/TSB hafa sent opið bréf til Hönnu Katrínar Friðriksson, atvinnuvegaráðherra, Hrannar Ólínu Jörundsdóttur, forstjóra Matvælastofnunar og Þóru J. Jónasdóttur, yfirdýralæknis hjá Matvælastofnun. Í bréfinu er skorað á þær að sjá til þess að Evróputilskipun um vernd dýra sem notuð eru í vísindaskyni og blóðmerahald á Íslandi fellur undir verði virt.  

Blóðtaka úr dýrum er ekki hliðargrein í landbúnaði

Fyrirtækið Ísteka sem er helsti framleiðandi hormóns úr hryssublóði fyrir Evrópumarkað fer fram á að starfsemin verði skilgreind sem hefðbundinn landbúnaður. Hormónið er selt sem lyfjaefni og unnið úr því frjósemislyf hjá erlendum fyrirtækjum og aðallega notað sem frjósemislyf fyrir svín í verksmiðjubúum í Evrópu.

Fyrirtækið heldur því fram að starfsemi þess sé hliðargrein í landbúnaði. Blóð er ekki dýraafurð eins og mjólk eða egg og er blóðsöfnun úr hryssum alfarið í þágu lyfjaframleiðslu og er ekki landbúnaðarstarfsemi.


Strangar reglur um vernd dýra sem notuð eru í vísindaskyni 

Samkvæmt Evróputilskipun 2010/63 um vernd dýra sem eru notuð í vísindaskyni (og samsvarandi ísl. reglugerð 460/2017) skal notkun á lifandi dýrum þegar mögulegt er, vera skipt út fyrir aðrar aðferðir. Ljóst er að til eru aðrar árangursríkar leiðir en notkun PMSG hormónsins, sem unnið er úr blóði íslenskra hryssa, við að koma af stað og samstilla gangmál hjá búfé. Til er fjöldi kemískra lyfja sem þjóna sama tilgangi sem og ráðstafanir í búfjárrækt sem byggja á aukinni velferð dýranna, en PMSG er, sem fyrr segir, aðallega notað í verksmiðjubúskap þar sem velferð dýra er virt að vettugi.

Ísteka stendur nú í málaferlum við íslenska ríkið þar sem fyrirtækið vill að starfsemin verði skilgreind sem hefðbundinn landbúnaður. Von er á niðurstöðu EFTA dómstólsins um hvort starfsemin falli undir notkun dýra í vísindaskyni eða landbúnaðarstarfsemi. 

Hér má lesa bréf dýraverndarsamtakanna til íslenskra stjórnvalda.

Til baka

Next
Next

Bréf til framkvæmdastjórnar ESB: Bannið PMSG til að stöðva þjáningar blóðmera