Stöðvum blóðmerahald: 300 þúsund undirskriftir afhentar atvinnuvegaráðherra
21. október 2025
Fimm alþjóðleg félagasamtök, ásamt Dýraverndarsambandi Íslands (DÍS) og Samtökum um dýravelferð á Íslandi (SDÍ), afhentu Hönnu Katrínu Friðriksson atvinnuvegaráðherra 300.000 undirskriftir þann 20. október, þar sem íslensk stjórnvöld eru eindregið hvött til að banna blóðmerahald.
Leyfi Ísteka fyrir blóðtöku úr fylfullum hryssum til framleiðslu á hormóninu PMSG rann út nú í október. Lyfjaefnið er notað sem frjósemislyf erlendis, aðallega fyrir svín í þauleldi og veldur auknu álagi á gyltur og getur sömuleiðis valdið auknum grísadauða.
Ljóst er að sú blóðtaka sem framkvæmd er hér á landi í blóðmerahaldi fer langt umfram alþjóðleg viðmið, bæði að magni og tíðni. Einnig er meðferðin á hryssunum sem eru yfirleitt lítið tamdar, fullkomlega óviðunandi.
Nú er tækifæri fyrir stjórnvöld til að hlífa þúsundum dýra við frekari þjáningu.
Samtökin stóðu fyrir táknrænni aðgerð fyrir framan Alþingi, þar sem sýnt var hversu mikið blóð er tekið úr hryssum í blóðmerahaldinu árlega, eða 5 lítrar á viku í allt að 8 vikur í röð.
„Þetta er tækifæri Íslands til að velja dýravelferð fram yfir gróða,“ segir Sabrina Gurtner, verkefnastjóri hjá Animal Welfare Foundation (AWF) og Tierschutzbund Zürich (TSB). „Frá því að við afhjúpuðum grimmdina á bak við blóðmerahald hafa hryssur haldið áfram að þjást – hræddar, aðskildar frá folöldum sínum, lokaðar inni í þröngum básum á meðan að blóði er dælt úr þeim. Það er engin spurning að endurnýjun leyfis Ísteka væri bæði grimm og ómannúðleg. Þar að auki væri það brot á Evrópulögum.”
Sabrina Gurtner verkefnastjóri hjá Animal Welfare Fund (AWF) afhenti Hönnu Katrínu Friðrikson atvinnuvegaráðherra undirskriftirnar.
Endurnýjun leyfisins bryti gegn Evróputilskipun
Fyrir tveimur og hálfu ári sendi Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) formlega aðvörun til íslenskra stjórnvalda um að Ísland bryti gegn tilskipun ESB nr. 2010/63/EU um vernd dýra sem notuð eru í vísindaskyni. Ísland hefur viðurkennt þessa tilskipun samkvæmt EES-samningnum og er því skuldbundið til að fylgja henni.
Því gildir reglugerð nr. 460/2017 nú um blóðmerahald og blóðtaka úr hryssum er skilgreind sem notkun dýra í vísindaskyni. Það þýðir að slík notkun þarf leyfi sem ekki má samþykkja ef til eru aðrar leiðir sem notast ekki við lifandi dýr – og slíkar aðferðir hafa lengi verið notaðar með góðum árangri í löndum eins og Sviss og meira að segja á Íslandi.
Þrátt fyrir þetta fékk Ísteka heimild frá Matvælastofnun (MAST) til að halda starfsemi sinni áfram fram í október 2025. Ef leyfið verður endurnýjað nú, mun Ísland því bæði brjóta eigin reglur og evrópsk lög.
„Endurnýjun leyfisins stenst ekki lög og væri andstæð skuldbindingum Íslands samkvæmt EES- samningum,“ segir Linda Karen Gunnarsdóttir, formaður Dýraverndarsambands Íslands (DÍS). „Ísland hefur þegar viðurkennt að blóðmerahald falli undir vernd tilskipunar ESB – nýtt leyfi væri því augljóslega brot á þeirri skuldbindingu.“
Deborah Lewis herferðarstýra hjá Ekō.
Alþjóðleg gagnrýni og ímynd Íslands í húfi
Blóðmerahald veldur einnig alvarlegum skaða á ímynd Íslands á alþjóðavettvangi. Ferðamenn og dýravinir um allan heim lýsa yfir undrun og reiði yfir því að blóðmerahald sé enn leyft. Þar sem ferðaþjónusta er ein helsta stoð íslensks efnahagslífs vara samtökin við því að ákvörðun stjórnvalda varðandi blóðmerahaldið muni senda skilaboð um gildi landsins.
„Fólk kemur til Íslands til að upplifa ósnortna náttúru“ segir Deborah Lewis, herferðastýra hjá Ekō. „En fólki bregður þegar það kemst að því að á bakvið glansmyndina er verið að dæla blóði úr fylfullum hryssum í hagnaðarskyni og það er skaðlegt fyrir orðspor landsins. Þetta er afgerandi augnablik fyrir Ísland – stjórnvöld geta annaðhvort látið undan iðnaðinum eða valið samkennd og velferð dýra. Við hvetjum ráðherrann í dag til að taka rétta ákvörðun og banna blóðmerahald.“
Þau samtök sem stóðu fyrir undirskriftarsöfnunum ásamt stuðningi Samtaka um dýravelferð voru Animal Welfare Foundation og Tierschutzbund Zürich, Anima, Ekō, Care2 og Dýraverndarsamband Íslands.
Ljósmyndir: Lisa Nowinski

