Yfirlýsing DÍS vegna aukins eftirlits með hvalveiðum

14. september 2022

Stjórn DÍS lýsir yfir eindregnum stuðningi við aukið eftirlit með hvalveiðum og ítrekar andstöðu sambandsins við slíkar veiðar.

Frá því hvalveiðar hófust að nýju við Ísland árið 2003 hefur DÍS nokkrum sinnum mótmælt  þeim af þeirri einföldu ástæðu að þær standast ekki nútímakröfur um veiðar og dýravelferð.   Í ljós hefur komið að það getur tekið allt að hálfa klukkustund fyrir þessi risastóru spendýr að  deyja frá því að fyrsti skutullinn hæfir þau og stór dýnamíthleðsla springur inni í þeim. Um er  að ræða veiðar í atvinnuskyni og í þeim tilgangi að framleiða matvæli. Það væri óhugsandi að slík slátrun yrði leyfð í dag á landspendýrum.

Samkvæmt reglugerð matvælaráðherra frá því 11. ágúst síðastliðinn ber MAST ábyrgð á eftirlitinu en samningur er við Fiskistofu um að mynda allt ferlið frá því veiðar hefjast þar til hvalirnir eru komnir á plan í hvalstöð. DÍS leggur ríka áherslu á að þessar eftirlitsstofnanir sinni verkefninu af kostgæfni enda telur DÍS að ef rétt er að þessu eftirliti staðið muni koma óyggjandi í ljós að veiðarnar brjóta í bága við gildandi lög um dýravelferð.

Um leið hvetur Dýraverndarsamband Íslands stjórnvöld til að gera þau gögn sem aflast með hinu nýja eftirliti opinber.

Stjórn DÍS

Til baka

Previous
Previous

DÍS hefur áhyggjur af dýrum í neyð

Next
Next

DÍS skorar á MAST að sinna án tafar lögbundum skyldum sínum