DÍS skorar á MAST að sinna án tafar lögbundum skyldum sínum
Mynd: Steinunn Árnadóttir
1. september 2022
Stjórn Dýraverndarsambands Íslands (DÍS) skorar á Matvælastofnun (MAST) að sinna án tafar lögbundum skyldum sínum varðandi velferð hrossa sem eru í neyð í Borgarbyggð og fjallað hefur verið um í fréttum síðasta sólarhring.
DÍS krefst þess jafnframt að MAST komi lögum yfir eigendur þeirra dýra sem eru í neyð í Borgarbyggð og tilkynntir hafa verið til stofnunarinnar. Sýnt er að ítrekað hefur verið haft samband við yfirvöld um aðstæður dýranna án viðbragða af hálfu MAST.
Þetta mál í Borgarbyggð er ekki fyrsta tilvikið þar sem Matvælastofnun bregst seint og illa við rökstuddum grun um slæma meðferð á dýrum. MAST hefur þær lagaheimildir sem þarf til að bregðast tafarlaust við slíkum málum og ber að nýta þær. Við svo búið verður ekki unað og ljóst er að taka verður til gagngerrar endurskoðunar eftirlitshlutverk stofnunarinnar með velferð dýra.
Stjórn DÍS
Til baka