Þingmenn óska eftir svörum varðandi eftirlit með dýravelferð
17. mars 2026
Þingkonan Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir hefur, ásamt níu þingmönnum úr þremur flokkum, kallað eftir úttekt á eftirlit Matvælastofnunar (MAST) með dýravelferð.
Biðja þau um að atvinnuvegaráðherra flytji Alþingi skýrslu um stjórnvaldsaðgerðir MAST. Þau segja að beiðnin sé lögð fram vegna vaxandi umræðu og gagnrýni á framkvæmd eftirlits MAST með dýravelferð, einkum hvað varði samræmi í beitingu úrræða, eftirfylgni ítrekaðra brota og skýrleika þeirra viðmiða sem lögð séu til grundvallar þegar gripið sé til íþyngjandi stjórnvaldsaðgerða.
Halaklippingar á grísum og blóðtaka úr hryssum
Þingmennirnir óska eftir svörum við tíu atriðum, þar á meðal vegna kvartana er varða velferð gæludýra, meðferð hryssna við blóðtöku og aðbúnað búfjár.
Þau spyrja meðal annars á hvaða lagagrundvelli MAST byggir það mat að heimilt sé að veita undanþágu vegna halaklippinga á svínum, hvernig slíkum undanþágum sé háttað í framkvæmd og hvernig MAST tryggir að halaklipping sé einungis framkvæmd í samræmi við skilyrði laga um velferð dýra og reglugerðar um velferð svína.
Í greinargerð sem fylgir skýrslubeiðni þingmannanna er einnig fjallað um blóðmerahald. Segir þar að sérstaka athygli hafi vakið þegar MAST greindi frá því í apríl árið 2025 að málsmeðferð vegna erinda um illa meðferð hryssna við blóðtöku væri lokið án frekari aðgerða.
Stofnuninni hafi borist fjölmörg myndbönd sem sýndu alvarlega meðferð á fylfullum hryssum þar sem sparkað var í þær og þær barðar með prikum. Einnig að í tilkynningu stofnunarinnar hafi komið fram að í ljósi viðbragða og úrbóta rekstraraðila þar sem atvikin áttu sér stað hafi verið talið að ekki væri þörf á frekari aðgerðum af hálfu stofnunarinnar. Í kjölfar þessarar niðurstöðu hafi stofnunin sætt gagnrýni af hálfu dýraverndarsamtaka hérlendis og erlendis.
Gagnsæi og skýr ábyrgð í stjórnsýslu á sviði dýravelferðar
Í greinargerð þingmannanna tíu sem koma frá Flokki fólksins, Samfylkingu og Sjálfstæðisflokki er óskað eftir heildstæðri og skýrri umfjöllun um framkvæmd, verklag og lagagrundvöll eftirlits MAST með dýravelferð. Markmiðið sé að tryggja gagnsæi, samræmi og skýra ábyrgð í stjórnsýslu á sviði dýravelferðar þannig að framkvæmd laga og reglugerða endurspegli í reynd þau markmið sem löggjafinn hefur sett um vernd dýra gegn óþarfa þjáningu.
Dýraverndarsamband Íslands fagnar því að kallað sé eftir ítarlegum svörum frá atvinnuvegaráðherra um framkvæmd, verklag og lagagrundvöll dýraeftirlits í þágu dýravelferðar á Íslandi.
Hér má lesa um nánar málið.

