DÍS hefur áhyggjur af dýrum í neyð

13. október 2022

Ástand hrossanna í Borgarbyggð, sem sýnt hefur verið í fjölmiðlum og á opnum fésbókarsíðum einkaaðila, er grafalvarlegt. Augljóst er að meðferð þeirra brýtur í bága við lög nr. 55/2013 um velferð dýra. Aðgerða er þörf strax.

Stjórn Dýraverndarsamband Íslands (DÍS) skorar á þar til bær yfirvöld að grípa tafarlaust til aðgerða og að sjá til þess að þessum hrossum verði komið í örugga umsjá þar sem heilsa og velferð þeirra verði tryggð á meðan málið er í ferli.   

Þökk sé huguðum einstaklingi hefur þetta mál ratað upp á yfirborðið. Það vekur óneitanlega upp óhug varðandi önnur tilfelli í sveitum landsins þar sem eftirlit virðist vera ófullnægjandi og ekki er gripið til aðgerða. Viðbrögð Matvælastofnunar (MAST) í málinu er með öllu óviðunandi og sýna glöggt að kerfisbreytingar eru nauðsynlegar án tafar.

Stjórn DÍS

Til baka

Previous
Previous

DÍS krefst tafarlausra aðgerða af hálfu stjórnvalda

Next
Next

Yfirlýsing DÍS vegna aukins eftirlits með hvalveiðum