6. mars 2023
Í tilefni af fréttum um kettlinga sem fundust dánir í læk á Eskifirði sl. laugardag vill Dýraverndarsamband Íslands benda á að bannað er með lögum um velferð dýra, nr. 55/2013, að drekkja dýrum. Slíkt felur í sér óheyrilega grimmd.
Dýralæknum er einum heimilt að aflífa gæludýr, nema í neyðartilfellum þegar fullreynt er að ekki næst í dýralækni og ætla má að sjúkdómur dýrs eða meiðsl valdi dýrinu óbærilegum kvölum eða séu banvæn.
Dýraverndarsamband Íslands fordæmir allt dýraníð.
Til baka
Dýraverndarsamband Íslands fordæmir allt dýraníð
Previous
Previous
Bætt dýravelferð - málþing 14. mars 2023
Next
Next

