Bætt dýravelferð - málþing 14. mars 2023
11. mars 2023
Bætt dýravelferð - Ný úttekt um stöðu og framtíð dýravelferðar á Íslandi verður kynnt á opnu málþingi í Öskju, Sturlugötu 7, 102 Rvk, þriðjudaginn 14. mars klukkan 17:00-19:00.
Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra setur málþingið og síðan mun Ágúst Ólafur Ágústsson lögfræðingur og hagfræðingur kynna úttektina sem hann hefur unnið fyrir Dýraverndarsamband Íslands (DÍS).
Þá verða pallborðsumræður með virkri þátttöku gesta í sal en í pallborði sitja auk skýrsluhöfundar fulltrúar matvælaráðuneytis, Matvælastofnunar og Dýraverndarsambands Íslands.
Skráning hér. Bein útsending verður frá málþinginu, á eftirfarandi hlekk.
Dagskrá
Stjórnandi málþings er Sigursteinn R. Másson rithöfundur og fjölmiðlamaður.
Kl 17:00 Opnunarávarp - Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra
Kl 17:05 Ávarp - Linda Karen Gunnarsdóttir formaður DÍS
Kl 17:10 Kynning - Ágúst Ólafur Ágústsson lögfræðingur og hagfræðingur kynnir niðurstöður skýrslunnar - Bætt dýravelferð
Kl 17:30 Hlé
Kl 17:35 Pallborð ræðir skýrsluna með áherslu á tillögur hennar og næstu skref
Sigurborg Daðadóttir yfirdýralæknir hjá Matvælastofnun
Einar Örn Thorlacius lögfræðingur hjá Matvælastofnun
Ása Þórhildur Þórðardóttir skrifstofustjóri á skrifstofu landbúnaðar hjá matvælaráðuneyti
Sigtryggur Veigar Herbertsson sérfræðingur í dýravelferð
Ágúst Ólafur Ágústsson lögfræðingur og hagfræðingur
Linda Karen Gunnarsdóttir formaður DÍS
Anna Berg Samúelsdóttir stjórnarmaður í DÍS og fulltrúi sambandsins í fagráði um velferð dýra.
Kl.19:00 Málþingi slitið
Mætum öll í Öskju þriðjudaginn 14. mars klukkan fimm og tökum þátt í að móta bætt eftirlit með dýravelferð á Íslandi!
Dýraverndarsamband Íslands
Til baka