Áskorun til umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra að verja lundastofninn
3. júní 2025
Dýraverndarsamband Íslands hefur skorað á umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra að vernda lundastofninn með aðgerðum fyrir sumarið. Telur sambandið að stíga þurfi fastar til jarðar en í þeim tilmælum sem ráðuneytið gaf út á síðasta ári og veiðar á lunda verði stöðvaðar í ár vegna stöðu stofnsins. Til vara óskar DÍS eftir því að sala á lundakjöti verði gerð óheimil.
Lundinn færðist upp í það að teljast vera tegund í bráðri hættu þegar válisti Náttúrufræðistofnunar var uppfærður árið 2018 og var á þessu ári áfram metinn í bráðri hættu. Var það niðurstaða erlendra sérfræðinga sem rýndu tölurnar á síðasta ári að beiðni Umhverfisstofnunar að langtímafækkun í lundastofninum megi m.a. rekja til uppsafnaðra áhrifa veiða og að áframhaldandi veiðar muni valda frekari fækkun í viðkvæmum stofninum.
Í fyrrasumar hvatti umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið lundamenn til að gæta hófs við veiðar og sölu lunda og biðlaði til veitingahúsa að endurskoða hvort lundi eigi heima á þeirra matseðli. Dýraverndarsamband Íslands telur að varúðarsjónarmið mæli með því að stigið sé fastar til jarðar og veiðar á lunda verði bannaðar vegna stöðu stofnsins. Til vara óskar DÍS eftir að sala á lundakjöti verði gerð óheimil.
Áskorun DÍS til ráðherra er aðgengileg hér á vefnum.