Kæri félagi í Dýraverndarsambandi Íslands.
Aðalfundur DÍS fyrir árið 2017 verður haldinn þann 6. mai næstkomandi kl. 15-17, í húsakynnum félagsins að Grensásvegi 12 A. Dagskrá aðalfundar: 1. Fundur settur 2. Fundarstjóri og ritari tilnefndur 3. Kynning framboða til stjórnar 4. Ársskýrsla DÍS og verkefni næsta árs 5. Reikningar ársins 2016 lagðir fram 6. Kosning stjórnar 7. Lagabreytingar 8. Félagsgjöld 9. Önnur mál Varðandi stjórnarkjör: Árlega er kosið um annað hvort ritara og tvo meðstjórnendur eða um formann, gjaldkera og einn meðstjórnanda. Á þessu ári er kosið um ritara og tvo meðstjórnendur. Starfandi ritari gefur áfram kost á sér til starfa fyrir félagið. Gjaldkeri á öðru ári hefur ákveðið að óska lausnar og einn meðstjórnandi ákveðið að gefa kost á sér í hennar stað, til eins árs. Að auki þarf að kjósa um tvo meðstjórnendur annan til eins og hinn til tveggja ára. Um rétt til setu í stjórn vísast til laga félagsins. Framboð til stjórnar og tillögur að lagabreytingum þurfa að berast fyrir laugardaginn 29. apríl og verður hvort tveggja kynnt á heimasíðu félagsins mánudaginn 1. maí. Þeir sem bjóða sig fram til stjórnarsetu eru beðnir að senda kynningartexta til skrifstofu félagsins ásamt framboði sínu og verður það einnig kynnt á heimasíðunni. Varðandi rétt til setu á aðalfundi vísast til laga félagsins, sjá nánar á heimasíðu. Allar upplýsingar varðandi fundinn og lög félagsins eru að finna á heimasíðu félagsins www.dyravernd.is og á skrifstofu félagsins, en þér er hjartanlega velkomið að hafa samband og fá nánari upplýsingar. Síminn er 550 3044 Reykjavík, 22. apríl 2017 Stjórn DÍS Comments are closed.
|