Aðalfundur Dýraverndarsambands Íslands 2018 verður þriðjudaginn 29. maí kl. 20:00-22:00 í húsnæði félagsins að Grensásvegi 12A (bakhús). Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf: 1. Fundur settur 2. Fundarstjóri og ritari tilnefndur 3. Kynning framboða til stjórnar 4. Ársskýrsla DÍS og verkefni næsta árs 5. Reikningar síðasta árs lagðir fram til samþykktar 6. Kosning stjórnar 7. Lagabreytingar 8. Félagsgjöld og nýjir félagar til samþykktar 9. Önnur mál Varðandi stjórnarkjör: Árlega er kosið um annað hvort ritara og tvo meðstjórnendur eða um formann, gjaldkera og einn meðstjórnanda, alltaf til tveggja ára. Á þessu ári er kosið um formann, gjaldkera og einn meðstjórnanda. Starfandi formaður gefur áfram kost á sér til starfa fyrir félagið. Gjaldkeri hefur ákveðið að hverfa frá þjónustu og einn meðstjórnandi ákveðið að gefa kost á sér í stöðu gjaldkera. Eitt framboð hefur borist til meðstjórnanda. Um rétt til setu í stjórn vísast til laga félagsins, sjá nánar á heimasíðu. Framboð til stjórnar og tillögur að lagabreytingum þurfa að berast fyrir þriðjudaginn 22. maí og verður hvort tveggja kynnt á heimasíðu félagsins fimmtudaginn 24. maí. Þeir sem bjóða sig fram til stjórnarsetu eru beðnir um að senda kynningartexta ásamt framboði sínu og verður það einnig kynnt á heimasíðunni. Varðandi rétt til setu á aðalfundi vísast til laga félagsins, sjá nánar á heimasíðu. Allar upplýsingar varðandi fundinn og lög félagsins er að finna á heimasíðu félagsins www.dyravernd.is og á skrifstofu félagsins, en þér er hjartanlega velkomið að hafa samband og fá nánari upplýsingar. Síminn er 550 3044 Reykjavík, 15. maí 2018 Stjórn DÍS. . Comments are closed.
|