Dýraverndarsambandið hefur sent Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu athugasemd og fór þar fram á leiðréttingu vegna breytingar sem gerð var á drögum að reglugerð um velferð svína. Enginn virtist þá vita við fyrstu eftirgrennslan hvaðan sú breyting var komin, m.a. könnuðust umsagnaraðilar á borð við MAST og Félag svínabænda ekki við hana. Dýraverndarsambandið átti fulltrúa í hópnum sem vann að drögum að reglugerð um velferð svína og var þar ýmislegt til bóta, en félagið fagnaði til dæmis að ákvæði hélst inni um að leyfilegt yrði að halda svín úti, sem ekki var áður. Sú breyting sem kom í ljós við birtingu reglugerðarinnar og DÍS gerir alvarlega athugasemd við, var sjöunda grein um hreyfingu, hvíld og þarfir. Í drögunum var kveðið á um að 7 dögum fyrir og eftir got skyldi þrengja að gyltum í gotstíum, m.s. vegna öryggis grísanna sem til dæmis þurfa að læra að færa sig þegar móðirin leggst niður. En við útgáfu reglugerðarinnar hafði þessi tími lengst upp í 28 daga eftir got, sem er bæði óþarft og óásættanlegt út frá sjónarmiðum dýravelferðar. Við nánari eftirgrennslan kom svo í ljós að breyting þessi átti sér stað inni í ráðuneytinu sjálfu þar sem unnin var samræmingarvinna við aðrar reglugerðir á Norðurlöndunum um velferð svína. Við lítum til frændþjóða okkar við vinnu sem þessa og hér var þessu breytt í þeim ferli. Samkvæmt upplýsingum frá ráðuneytinu er nú unnið að lagfæringum á þessu og er það skilningur okkar í Dýraverndarsambandinu að nánast sé um formsatriði að ræða, en ekki matsatriði. Við göngum því út frá því að þetta verði leiðrétt. Einnig hafa svínabændur sjálfir lýst undrun á þessu og við vitum að þeir hafa sjálfir óskað formlega eftir það þetta verði leiðrétt. Jafnframt var okkur tjáð í ráðuneytinu að þegar þessari lagfæringu sé lokið verði reglugerðin send til umsagnaraðila, m.a. dýraverndarsamtaka á borð við DÍS og Velbú, til umsagnar. Hér má sjá núgildandi reglugerð: Reglugerð um velferð svína Comments are closed.
|